Auglýsingamarkaðurinn mælir í hverjum mánuði með nákvæmum hætti allar auglýsingar sem birtast í dagblöðum, tímaritum og sjónvarpi. Niðurstaðan er safn upplýsinga um hve mikið einstök fyrirtæki í mismunandi greinum auglýsa, hvar þau auglýsa og hvenær.
Auglýsingamarkaðurinn getur til dæmis nýst þér á eftirfarandi hátt:
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is
Auglýsingamarkaðurinn getur til dæmis nýst þér á eftirfarandi hátt:
- Til að fylgjast með keppinautunum
- Hve mikið auglýsa samkeppnisaðilarnir, hvar og hvenær? Upplýsingarnar er hægt að bera saman við t.d. markaðshlutdeild.
- Til að auka markaðshlutdeild
- Þú getur skoðað hvort auknar auglýsingar samkeppnisaðila hafi skilað aukinni markaðshlutdeild.
- Til að meta árangur markaðsaðgerða
- Auglýsingamarkaðurinn heldur utan um kostnað vegna markaðsátaks sem síðan er hægt að bera saman við ávinning af átakinu.
- Til þess að halda utan um erlend vörumerki
- Margir af núverandi viðskiptavinum senda upplýsingar Auglýsingamarkaðarins til erlendra birgja. Samkeppni milli vörumerkja getur verið mjög hörð og erlendir birgjar leggja mikla áherslu á að fylgjast með þróuninni á íslenska auglýsingamarkaðinum.
- Til þess að hafa yfirsýn og fylgjast með þróun
- Aðgangur að Auglýsingamarkaðinum eykur yfirsýn og skilning á íslenska auglýsingamarkaðinum og gerir kleift að fylgjast með langtíma þróun.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is