AdEval* er leiðandi aðferðafræði til að mæla áhrifamátt auglýsinga. Capacent Gallup býður nú upp á aðferðafræðina í samstarfi við alþjóðlega markaðsrannsóknafyrirtækið TNS.
Um er að ræða byltingu í auglýsingamælingum á Íslandi. Í stað þess að mæla einungis eftirtekt og viðhorf til auglýsinga, gefur AdEval aðferðafræðin innihaldsríkar upplýsingar um virkni auglýsingarinnar á markhópinn. Þannig gefur AdEval greiningin það til kynna hvort auglýsingin komi til með að virka á markhópinn, auk þess sem þeir þættir sem ákvarða hvort auglýsingin virki/virki ekki á markhópinn eru greindir.
AdEval byggir í grunninn á nokkrum lykilspurningum, en út frá þeim er fólki skipt í hópa út frá áhrifum auglýsingarinnar. Myndin hér fyrir neðan lýsir á einfaldan hátt mögulegum áhrifum auglýsinga á markhópinn.
Áhrif auglýsingarinnar eru greind eftir helstu bakgrunnsbreytum og því hvort um neytendur vöru sé að ræða eða ekki.
Kaupendum gefst kostur á því að bera niðurstöður auglýsingarinnar saman við alþjóðlegan auglýsingagrunn sem byggir á u.þ.b. 10 þúsund auglýsingum.
Tvenns konar greiningar standa til boða:
*AdEval aðferðafræðin var þróuð af TNS og hefur verið notuð úti um allan heim í meira en 10 þúsund rannsóknarverkefnum. Hægt er að beita aðferðinni á allar tegundir auglýsinga, auk þess sem hægt er að mæla bæði fullkláraðar auglýsingar sem og auglýsingar á hugmyndastigi.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is

- Einföld AdEval greining.
- AdEval greining og hefðbundin auglýsingamæling. Til viðbótar við AdEval greininguna er eftirtekt mæld, ásamt viðhorfi til auglýsingarinnar. Þessi greining byggir á 15 spurningum.