Fjölmiðlamælingar

Um árabil hefur Capacent verið leiðandi fyrirtæki við fjölmiðlamælingar á Íslandi. Samhliða nýrri tækni og aðferðum  hafa mælingar okkar orðið nákvæmari og niðurstöðurnar ferskari. Breyttar aðferðir hafa skilað sér í miklu betri upplýsingum fyrir auglýsendur.

Beint í æð
Sjónvarps- og útvarpshlustun er mæld með nýrri, rafrænni aðferð, svokallaðri PPM-tækni, og er úrtakið um 500 manns á aldrinum 12-80 ára. Mælingin fer þannig fram að þátttkandinn ber lítið tæki á sér sem nemur merki sem berast með hljóði frá sjónvarps- og útvarpsstöðvum. „Þannig mælum við allt árið í kring hverja einustu mínútu sem send er út og vitum hversu margir eru að hlusta. Við fáum gögn frá á hverjum einasta degi og getum þar með reiknað út hvað hátt hlutfall og hvaða hópur er að horfa á hvaða þætti,“ segir Guðni Rafn Gunnarsson hjá Capacent. Í hverri viku er birtur topplisti á heimasíðu Capacent yfir áhorf og hlustun á sjónvarp og útvarp. Auk þess fá fjölmiðlarnir sjálfir og birtingarhúsin ítarlegri niðurstöður um mælingarnar. Við skráum líka niður alla auglýsingatíma í helstu ljósvakamiðlum og getum þá séð hversu margir eru að horfa á auglýsingar frá ákveðnu fyrirtæki á þessu tímabili og þannig metið hvernig fyrirtækjum gengur að ná til ólíkra hópa samfélagsins.

Starfsmenn Capacent mæla dagblaðalestur með því að hringja til einstaklinga þar sem spurt er um lestur á dagblöðum gærdagsins. Þetta er samfelld mæling yfir allt árið þar sem niðurstöðurnar eru gefnar út ársfjórðungslega. Hér áður fyrr var lestur dagblaða mældur fjórum sinnum á ári með dagbókum þar sem ein vika var tekin fyrir. Við mælum dálksentirmetra í hverju dagblaði. Fyrirtæki getur þanning séð hvað það er að auglýsa mikið í dálksentrimetrum í blöðum á ákveðnu tímabili í samanburði við keppianuta þína.

Hagur auglýsenda
Fjölmiðlamælingar veita fyrirtækjum góðar vísbendingar um hvert þau eigi að beina fjármunum sínum vegna markaðs- og auglýsingamála og leiðir það til betri nýtingar þeirra fjármuna sem varið er í markaðsmál. Fyrirtækjum er jafnframt gert kleift að fylgjast gaumgæfilega með auglýsingum sínum sem og auglýsingum keppinautanna.

 Hér má sjá helstu niðurstöður úr fjölmiðlakönnunum.

Nánari upplýsingar:
Guðni Rafn Gunnarsson (gudni.gunnarsson@capacent.is)

Print Bookmark and Share

Lausnir

Auglýsingamarkaðurinn
Auglýsingamarkaðurinn mælir í hverjum mánuði með nákvæmum hætti allar auglýsingar sem birtast í...meira
Fjölmiðlakannanir
Capacent Gallup framkvæmir reglulegar mælingar á notkun almennings á helstu fjölmiðlum landsins...meira