Fjármál & rekstur

 

Stjórnvöld og fjármálafyrirtæki hafa gert samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Við aðstoðum fyrirtæki við að finna lausn á sínum málum og veitum alhliða fjármála- og rekstrarráðgjöf.

Capacent hefur á undanförnum árum þróað lausnir á sviði rekstrar og fjármála sem henta íslenskum fyrirtækjum. Við þróun þeirra hefur einkum verið lögð áhersla á að stjórnun fyrirtækja miðist við að hámarka ávinning hluthafa/eigenda til lengri tíma. Í opinberum rekstri er fyrst og fremst litið til þjónustugæða og rekstrarhagkvæmni. Lausnir okkar á sviði fjármála og rekstrar miða að því að bæta ákvörðunartöku fyrirtækja, spara tíma, auka afköst og bæta nýtingu þeirra fjármuna sem eru bundnir í rekstri.

Að auka virði reksturs
Virðisstjórnun er  hugmynda- og aðferðarfræði um rekstur og stjórnun fyrirtækja sem miðar að hámörkun ávöxtunar þess fjár sem er bundið í rekstrinum. Samkvæmt þessari nálgun er unnt að skilgreina „eðlilega“ ávöxtunarkröfu á hverja rekstrareiningu fyrirtækis og jafnframt að skipta efnahag fyrirtækis á rekstrareiningarnar. Virðisstjórnunin sjálf felst síðan í því að ná betri ávöxtun á bundið fé heldur en sem nemur „eðlilegri“ ávöxtunarkröfu. Mismunurinn er nefndur „raunhagnaður“. Þannig eru hagsmunir hluthafa hafðir að leiðarljósi og stjórnendur fá upplýsingar um leiðir til að auka verðmæti fyrirtækis.

Áætlun hönnuð að þörfum fyrirtækis

Aðstoð við áætlanagerð getur bæði verið gerð viðskiptaáætlunar sem og bætingu áætlanaferla. Verkefni getur falið í sér að við komum inn í fyrtæki, skoðum ferlana við áætlunargerðina og hvaða upplýsingar stjórnandi þarf til að geta gert áætlun. Fyrirtæki glíma oft við það vandamál að upplýsingar við áætlanagerð eru dreifðar, skjölin geta verið á mörgum stöðum og villuhættan því mikil. Þannig getum við hannað áætlunarmódel sem er aðlagað að þörfum fyrirtækis og kennum starfsmönnum á þau.

Stjórnendaupplýsingar
Upplýsingar um fyrirtæki eru mótaðar þannig að þær nýtist sem best fyrir stjórnendur og til samskipta við hagsmunaaðila. Sérhæfður hugbúnaður, eins og t.d. Cognos, er nýttur til að breyta gögnum úr núverandi upplýsingakerfum í fyrsta flokks stjórnunarupplýsingar. Frekari lausnir á fjármálasviði, sem fela í sér bættar stjórnendaupplýsingar, geta falist í því að gera úttekt og mat á fjármálasviði og/eða hraða mánaðarlegum uppgjörum með því að bæta upplýsingagjöf og innleiða ný vinnubrögð.

Nánari upplýsingar veita:

Hafliði Sævarsson (haflidi.saevarsson@capacent.is)
Þröstur Sigurðsson (throstur.sigurdsson@capacent.is)

Ingvi Þór Elliðsaon (ingvi@capacent.is)

Sigurður Hjalti Kristjánsson (sigurdur.hjalti.kristjansson@capacent.is)

 



Lestu grein Sigurðar Hjalta Kristjánssonar  í Straumum Viðskiptariti Capacent um viðsnúning í rekstri fyrirtækja.

Print Bookmark and Share
Smíði rekstrar- og fjármálalíkana
Gerð fjármálalíkana fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, allt frá einföldum...meira
Viðskiptaáætlanir
Faglega unnin viðskiptaáætlun getur skipt sköpum um hvort fyrirtæki tekst að sannfæra fjárfesta um...meira
Innkaupagreining
Vaxandi kostnaður fyrirtækja vegna aðkeyptra vara og þjónustu kallar á aukna áherslu á...meira
Virðisstjórnun og virðistré
Virðisstjórnun er hugmynda- og aðferðarfræði um rekstur og stjórnun fyrirtækja sem setur velferð...meira
Samstæðuuppgjör í Cognos Controller
Cognos Controller er notendavænn hugbúnaður sem lágmarkar þann tíma sem fer í uppgjörsvinnu og...meira
Hvata- og bónuskerfi
Hvatning í formi launa hefur meiri áhrif á hegðun starfsfólks en margt annað. Þótt ætla megi að fólk...meira
Hraðari uppgjör (Fast Close)
Mikilvægur þáttur í rekstri fyrirtækja eru uppgjör, hvort sem um er að ræða mánaðarleg, árshluta-...meira
Árangursstjórnun
Með árangursstjórnun aðstoðar Capacent fyrirtæki að koma á tengingu milli stefnu og reksturs með því...meira
Tímaskráningarkerfi CAC
CAC er verk- og tímaskráningarkerfi sem gerir tímaskráningu starfsmanna skilvirkari og auðveldari. meira
Frá hugmynd til fjárhagslegs ávinnings
Capacent hefur unnið með fyrirtækjum og stofnunum að því að móta umbótaverkefni til að ná fram...meira