Fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir síauknum kröfum frá innlendum og erlendum eftirlitsaðilum, stofnunum, löggjafanum og samfélaginu. Þar er meginkrafan skýrt stjórnkerfi með gegnsæi í ferlum og skýrri ábyrgð. Kortleggja þarf öll þau ferli sem eru til staðar og straumlínulaga verklagsreglur og verkferla til þess að koma í veg fyrir sóun í tíma og fjármunum. Jafnframt hafa mörg fyrirtæki gengið lengra og innleitt gæðastjórnun, sem tekur mið af ISO9001, í því augnamiði að gera stjórnun markvissari, eyða óvissu og gera ábyrgðir skýrari.
Capacent hefur langa reynslu við innleiðingu á ferlastjórnun og gæðastjórnun hjá íslenskum fyrirtækjum, sveitarfélögum og ríkisstofnunum. Við mótun og innleiðingu ferlastjórnunar og/eða gæðastjórnunar getur Capacent m.a. aðstoðað við eftirtalin verkefni:
- Mati á núverandi stöðu innra stjórnkerfis og ferla auk stöðu gæðamála, t.d. ISO 9001 og ISO 14000.
- Námskeiðum m.a. í gerð verkferla og innri úttekta, og þjálfun starfsfólks og lykilaðila.
- Ráðgjöf og aðstoð við uppbyggingu og mótun ferla í stjórnkerfi fyrirtækja/stofnana og gæðakerfis samkvæmt ISO 9001:2008 og ISO 14000.
- Eftirfylgni á sviði innri úttektar og astoðar við vottunarferli.
Aukin afköst og hærra þjónustustig
Ferla- og gæðastjórnun hafa skilað fyrirtækjum, sveitarfélögum og ríkisstofnunum betri yfirsýn yfir reksturinn og náð fram hagræðingu á öllum sviðum. Skýrari stefna og uppbygging stjórnkerfis, markvissari ferlar og betri upplýsingamiðlun eru einnig atriði sem fyrirtæki hafa náð betri stjórn á.
Nánari upplýsingar veitir:
Ottó Magnússon (otto.magnusson@capacent.is)