Á síðustu árum og áratugum hefur umhverfið í verslun og þjónustu á Íslandi tekið stakkaskiptum. Óvíða er meiri samkeppni en einmitt í þessum atvinnugreinum auk þess sem vöruúrval hefur stóraukist sem þýðir að val neytenda er meira. Verslun hefur færst úr því að vera heildsala yfir í það að vera markaðsfyrirtæki og þá hefur netið kallað á enn meira framboð og frekari samkeppni. Samanburður neytenda við þróaðri markaði erlendis hefur gert þá kröfuharðari og hefur umburðarlyndi markaðarins minnkað gagnvart slæmri þjónustu og mistökum.
Mikilvægi markaðsmála
Capacent býður upp á á alhliða fyrirtækjalausnir sem henta vel fyrir verslunar- og þjónustufyrirtæki. Í herbúðum okkar eru sérfræðingar í stefnumótun, ferlum og upplýsingatækni, áætlanagerð, mannauðsmálum, markaðsrannsóknum og á fleiri sviðum. Í þeirri miklu samkeppni sem ríkir í verslun og þjónustu skiptir máli að til staðar sé skýr markaðsstefna, vel skilgreindir markhópar og traustar upplýsingar til þess að skara fram úr og ná árangri. Ráðgjafar Capacent vinna með fyrirtækjum á öllum sviðum við skipulagningu og stjórnun markaðsmála með áherslu á mótun og framkvæmd markaðsstefnu. Lykilatriðið er aðstoð við gerð markaðsáætlana, þar sem tilgreindar eru aðgerðir um öflun upplýsinga um markaðinn, áherslur á einstaka markhópa, markaðssetningu, sölu, stjórnun viðskiptatengsla, þjónustu og mat á árangri.
Markaðsgreining fyrir verslanir
Árið 1997 var Markaðsgreining ehf., sem síðar varð hluti af Capacent, stofnuð í þeim tilgangi að koma á laggirnar sölutölugrunni um matvörumarkaðinn. Upplýsingarnar, sem unnið er með, byggjast á strikamerkjum og skanner og fær Capacent Markaðsgreining sölutölur frá 95% verslana á dagvörumarkaðnum á hverjum degi. Við vinnum þessar upplýsingar mjög náið með ACNielsen sem er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðsupplýsinga. Upplýsingarnar eru greindar niður í vöruflokka þannig að kaffi er einn vöruflokkur, gos annar, en alls er unnið með 60 vöruflokka. Um er að ræða vikulegar upplýsingar og er hægt að skoða þær út frá margvíslegum breytum og má þar helst nefna markaðsstærð og þróun, markaðshlutdeild í verðmæti og magni, verð og dreifingu.
Nánari upplýsingar:
Þórður Sverrisson (thordur.sverrisson@capacent.is)
Páll Ásgeir Guðmundsson (pall.gudmundsson@capacent.is)
Guðni Rafn Gunnarsson (gudni.gunnarsson@capacent.is)