Á sama tíma og félagasamtökum og verkalýðsfélögum hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum mæta þau oftar en ekki ýmis konar viðfangsefnum sem kalla á sérfræðiþjónustu. Capacent býður verkalýðsfélögum og félagasamtökum upp á víðtæka þjónustu á sviði ráðgjafar og rannsóknarvinnu.
Traust vitneskja um skoðanir og viðhorf félagsmanna skiptir starfsemi félagasamataka gríðarlega miklu máli. Undanfarin ár hefur Capacent gert viðamiklar kannanir á starfsskilyrðum og kjörum félagsmanna VR og SFR. Einnig hefur Capacent gert margvíslegar kannanir á viðhorfum og skoðunum félagsmanna ýmissa samtaka.
Nánari upplýsingar:
Jóna Karen Sverrisdóttir (jona.sverrisdottir@capacent.is)
Arnar Jónsson (arnar.jonsson@capacent.is)