Ríki & sveitarfélög

Stjórnsýslan stendur frammi fyrir þeirri áskorun að móta skipulag sem skapar skilyrði og starfsvettfang fyrir okkar sér íslensku aðstæður þannig að ráðuneyti, stofnanir og sveitarstjórnir geti uppfyllt hlutverk sitt með sóma fyrir lágmarks kostnað. Gríðarlega mikilvægt er að takast á við nýja stöðu í samfélaginu og byggja upp skilvirkt og faglegt skipulag stjórnsýslu.

Reynsla og þekking
Innan Capacent er að finna sérfræðiþekkingu og reynslu á öllum þeim sviðum sem opinber stjórnsýsla starfar.  Ráðgjafar Capacent hafa margir hverjir að baki langan feril sem starfsmenn og stjórnendur í opinberum rekstri og þekkja vel hið flóknu samspil ýmissa hagsmuna sem taka þarf tillit til ef góður árangur á að nást.

Öflugt ráðgjafarfyrirtæki
Með markvissri greiningarvinnu, sem byggist m.a. á faglegri úrvinnslu ýmissa upplýsinga úr eigin rannsóknum, aukum við líkur á því að ákvarðanir um úrbætur séu  byggðar á traustum grunni.  Með því að nýta okkur þekkingu og reynslu starfsfélaga okkar á hinum Norðurlöndunum getum við sett hlutina í alþjóðlegt samhengi og borið okkur þannig saman við það sem vel er gert annars staðar.

Við höfum mikla reynslu í greiningu á aðstæðum og skilgreiningum á mælikvörðum, við höfum sinnt ráðgjöf til stjórnenda í öllum greinum einkarekstrar og opinbers rekstrar og höfum á að skipa þrautreyndum ráðgjöfum í ráðningum á nýjum starfsmönnum. Þá erum við sérfræðingar í stefnumótun og mörkun (branding) og höfum reynslu af því að innleiða og viðhalda stefnumarkmiðum.

Nánari upplýsingar:
Þröstur Sigurðsson (throstur.sigurdsson@capacent.is)
Arnar Jónsson (arnar.jonsson@capacent.is)
Arnar Pálsson (arnar.palsson@capacent.is)


Print Bookmark and Share

Dæmi um lausnir

Vinnustaðargreining
Vinnustaðargreining, Gallup Workplace Audit (GWA), er greiningar- og rannsóknartæki sem greinir...meira

Stefnumótun
Meginviðfangsefni stefnumótunar felast í að skilgreina starfsemi og grundvöll til framtíðar, hver sé...meira

Vinnustaðargreining
Vinnustaðargreining, Gallup Workplace Audit (GWA), er greiningar- og rannsóknartæki sem greinir...meira

Dæmi um verkefni

Garðabær
Hönnun og innleiðing á fjárhagsáætlunarkerfi meira

Eyjafjarðarsveit
Ráðning sveitarstjóra meira

Iðnaðarráðuneyti
Ráðning ferðamálastjóra, sérfræðinga og lögfræðinga meira