Íslendingar standa framarlega á heimsvísu í orku- og stóriðjumálum og hafa Capacent og Capacent Glacier komið þar að ýmsum verkefnum, jafnt hér á landi sem erlendis.
Orkufyrirtæki og áliðnaður
Capacent gegnir tvíþættu hlutverki þegar kemur að ráðgjöf innan þessa geira: Annars vegar búum við til lausnir og leggjum til þau tól sem þeim fylgja. Hins vegar erum við í hlutverki verkefnastjóra og keyrum verkefni áfram áður en fyrirtækin taka sjálf við þeim. Ráðgjöf Capacent hefur einkum beinst að fjármála- og mannauðssviðum orku- og álfyrirtækja. Við höfum veitt aðstoð við gerð rekstraráætlana, þ.e. að móta verklag og ferla við gerð áætlana, og við gerð verklagsreglna, t.d. vinnulýsingar, leiðbeiningar og flæðirit. Þá hafa ráðgjafar Capacent einnig aðstoðað við gerð hagræðingu, við innkaupamál og annast útvistun á launakerfum. Fyrir starfsmannasvið fyrirtækja í þessum geira hefur Capacent t.d. sinnt ráðgjöf á sviði ráðninga- og starfsmenntunarmálum.
Nánari upplýsingar:
Ottó Magnússon (otto.magnusson@capacent.is)
Þröstur Sigurðsson (throstur.sigurdsson@capacent.is)