Íslenska menntakerfið hefur vaxið mikið á síðustu árum og samkeppni aukist á flestum sviðum þess. Á sama tíma hefur krafa samfélagsins um að skólar setji sér markmið, framtíðarsýn og gildi farið vaxandi. Jafnframt glíma stjórnendur skólastofnana við þá áskorun að veita hámarksþjónustu með sem minnstum tilkostnaði. Capacent hefur unnið margvísleg verkefni á öllum stigum skólakerfisins með sömu aðferðum og hafa verið þrautreyndar í öðrum rekstri og hjá erlendum menntastofnunum.
Capacent hefur unnið vinnustaðagreiningar og að úrbótum í framhaldi af þeim innan fjölmarga skóla á undanförnum misserum auk úttekta fyrir m.a. menntamálaráðuneytið.
Þá hafa skólastjórnendur sýnt stefnumiðuðu árangursmati (Balanced Scorecard) fyrir skóla mikinn áhuga á undanförnum árum. Þar er starfsmönnum skóla kennd aðferðafræði stefnumótunar og að koma stefnu í framkvæmd með gerð markmiða, mælikvarða og aðgerðir. Með þessari aðferðafræði geta skólar sett upp sitt eigið árangursmatskerfi.
Auk þess hafa ráðgjafar Capacent veitt ráðgjöf við stefnumótun fyrir mennta- og framhaldsskóla og þá má nefna að við höfum ritstýrt gæðahandbókum fyrir tvo háskóla, Listaháskólann og Háskólann á Bifröst.
Samstarf opinberu háskólanna
Frá haustinu 2011 hefur Capacent annast verkefnistjórn í tveggja ára verkefni sem miðar að því að efla samstarf opinberu háskólanna fjögurra, en þeir eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum. Í verkefninu er meðal annars lögð áhersla á aukið samstarf á ýmsum sviðum stoðþjónustu og á sviði náms og kennslu. Markmið verkefnisins eru að efla háskólakennslu, rannsóknir og nýsköpun, að hagræða í rekstri háskólanna þannig að fjármunir nýtist sem allra best og að halda uppi öflugri og fjölbreyttri háskólastarfsemi víðs vegar á landinu.
Aðgangspróf fyrir háskólastig
Capacent veitir á árinu 2012 aðstoð og ráðgjöf við þróun á almennu aðgangsprófi fyrir háskólastig, en það verkefni er unnið í nánu samstarfi Háskóla Íslands, Námsmatsstofnunar og þriggja annarra háskóla. Markmið verkefnisins er að gefa íslenskum háskóladeildum aðgang að vönduðu almennu aðgangsprófi sem nota megi þegar nauðsynlegt reynist að takmarka aðgang nemenda umfram hefðbundnar lágmarkskröfur um stúdentspróf.
Frekari upplýsingar:
Arnar Jónsson (arnar.jonsson@capacent.is)
Ásta Bjarnadóttir (asta.bjarnadottir@capacent.is)