Um árabil hefur Capacent Gallup mælt fjölmiðlanotkun íslensku þjóðarinnar og gert rannsóknir á íslenskum auglýsingamarkaði. Þessar upplýsingar gefa mikilvæga innsýn í fjölmiðalnotkun þjóðarinnar og nýtast jafnframt fjölmiðlum, fjarskiptafélögum og auglýsingastofum til að taka mikilvægar ákvarðanir um efnisval og fleira í þeim dúr. Við bjóðum einnig upp á alhliða fyrirtækjalausnir sem henta öllum fyrirtækjum sem starfa á þessu sviði.
Fjölmiðlamælingar og auglýsingamarkaður
Capacent Gallup hefur verið í miklu samstarf við fjölmiðla- og fjarskiptafélög í gegnum tíðina. Nægir þar að nefna fjölmiðlamælingar Capacent sem unnar eru í samvinnu við alla helstu fjölmiðla landsins. Niðurstöður útvarps- og sjónvarpsmælinga eru birtar vikulega á heimasíðu Capacent auk þess sem miðlar og auglýsingastofur kaupa aðgang að ítarlegri niðurstöðum. Dagblaðalestur er einnig mældur daglega og niðurstöðurnar birtar ársfjórðungslega.
Í samvinnu við alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið TNS notum við kerfi þar sem öll sjónvarpsdagskrá helstu fjölmiðla er tekin upp. Allar nýjar sjónvarpsauglýsingar sem birtast eru skráðar og þegar auglýsingin birtist þá þekkir kerfið hana og skráir hjá sér tímann og auglýsandann. Þannig geta auglýsendur nálgast á netinu gagnagrunn þar sem þeir fá yfirlit yfir þær auglýsingar sem þeir eru með í gangi í sjónvarpi, skiptingu eftir fjölmiðlum, tímalengd og hlutdeild miðað við keppinauta. Eins mælum við dálksentimetra í hverju dagblaði. Fyrirtæki geta þá séð hvað þau eru að auglýsa mikið í dálksentrimetrum á tilteknu tímabili í samanburði við keppinauta sína.
Þjóðarpúls Gallup
Capacent hefur um árabil reglulega tekið púlsinn á helstu málum sem eru í umræðunni í þjóðfélaginu. Þjóðarpúls Gallup er fréttabréf sem gefið er út reglulega og birtist efni hans á vefnum nokkru eftir að niðurstöður hafa borist áskrifendum. Fylgi flokka er mælt reglulega og stjórnmálaflokkar geta mánaðarlega fengið upplýsingar um fylgi allra flokka eftir kyni, aldri og kjördæmaskipan. Einnig er fylgst með væntingum fólksins í samfélaginu um framtíðarhorfur í efnahags- og atvinnumálum með Væntingavísitölu Gallup.
Nánari upplýsingar:
Páll Guðmundsson (pall.gudmundsson@capacent.is)
Guðni Rafn Gunnarsson (gudni.gunnarsson@capacent.is)