Fjármál & tryggingar

Capacent hefur í gegnum tíðina veitt bönkum, sparisjóðum, tryggingafélögum og lífeyrissjóðum þjónustu einkum á sviði markaðsmála, mannauðsmála og upplýsingatækni. Fjármálafyrirtæki standa nú frammi fyrir endurmati á allri starfsemi og skipulagi í ljósi breyttra aðstæðna og hafa orðið að endurmeta stjórnarhætti og stjórnunarferla í framhaldi af því.

Raunhæfur samanburður við önnur fyrirtæki

Í gegnum árin hefur Capacent komið að öllum mælingum sem stóru bankarnir hafa látið að gera, mælt markaðinn og markaðsstöðu þeirra, ímynd og tryggð viðskiptavina gagnvart bönkum, staðið fyrir starfsmannakönnunum og metið hvernig auglýsingaefni hefur komið út. Þungamiðjan í þessum mælingum hefur verið sú hvernig megi bæta þjónustu við viðskiptavini, auka starfsánægju og styrkja markaðsstöðu. „Þar sem þessar kannanir eru víðtækar gefa þær fyrirtækjum sem starfa í fjármálageiranum raunhæfan samanburð á því hvernig önnur félög í sama geira standa,“ segir Páll Ásgeir Guðmundsson, ráðgjafi hjá Capacent. „Nú sem fyrr er gríðarlega mikilvægt að mæla viðhorf viðskiptavina gagnvart fyrirtækjum, ekki síst fjármálafyrirtækjum. Fólk er orðið gagnrýnna á það sem það fær og er lofað og er virkara að færa sig um set ef ekki er rétt að málum staðið.“

Starfsfólki þjappað saman
Eftir þau áföll sem dundu yfir fjármálageirann hafa fjármálafyrirtæki leitast við að þjappa starfsfólki sínu saman um nýja og sameiginlega framtíðarsýn. Þar hefur Capacent gert vinnustaðagreiningar og skipulagt stóra vinnustaðafundi, þar sem allir starfsmenn geta tekið þátt og sagt sínar skoðanir. Í öllum tilvikum hefur þessi umræða og skipulag á umræðuferli meðal starfsmanna stuðlað að jákvæðri stemmningu fyrir endurmati og breytingum á nýrri framtíð.

Nánari upplýsingar:
Þröstur Sigurðsson (throstur.sigurdsson@capacent.is)

Páll Ásgeir Guðmundsson (pall.gudmundsson@capacent.is)

Print Bookmark and Share

Dæmi um lausnir

Smíði rekstrar- og fjármálalíkana
Gerð fjármálalíkana fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, allt frá einföldum...meira

Þjónustukannanir
Þjónustukönnununum Capacent Gallup er ætlað að varpa ljósi á upplifun viðskiptavina af þjónustu...meira

Samstæðuuppgjör í Cognos Controller
Cognos Controller er notendavænn hugbúnaður sem lágmarkar þann tíma sem fer í uppgjörsvinnu og...meira

Dæmi um verkefni

Borgun
Stefnumótun, skipulag og aðgerðaáætlun meira

BYR
Stefnumótun og skipulag meira

Moderna Finance
Útdeiling viðskiptavildar vegna Sjóvá og Askar Capital meira