Fylgi flokka ef kosið yrði til Alþingis í dag og stuðningur við ríkisstjórnina
06.06.2012
Stjórnarflokkarnir tapa fylgi - Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig
Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Af þeim sem taka afstöðu segjast rúmlega 39% ætla að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag sem er aukning um tvö prósentustig milli mánaða. Þetta er mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í janúar 2008. Að sama skapi minnkar fylgi við stjórnarflokkana. Tæplega 18% segjast myndu kjósa Samfylkinguna færu alþingiskosningar fram í dag sem er prósentustigi minna en fyrir mánuði og rúmlega tíundi hver segist myndi kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð sem er tveimur prósentustigum minna en fyrir mánuði. Fylgi við VG hefur ekki mælst jafn lágt síðan í október 2003. Fylgi Framsóknarflokksins breytist lítið milli mánaða en um 13% segjast myndu kjósa hann ef kosningar til Alþingis færu fram í dag. Ef litið er til annarra framboða heldur fylgi við Samstöðu áfram að minnka og segjast tæplega 6% þeirra sem tóku afstöðu ætla að kjósa flokkinn. Eins minnkar fylgi við Bjarta framtíð um prósentustig milli mánaða en 4% segjast myndu kjósa hana færu kosningar til Alþingis fram í dag. Rösklega 5% segjast myndu kjósa Dögun eða þau stjórnmálasamtök er standa að henni og nær 4% segjast myndu kjósa Hægri græna.
Nær 13% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og liðlega 14% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Stuðningur við ríkisstjórnina lækkar um tvö prósentustig milli mánaða eftir að hafa aukist milli mars og apríl. Mælist stuðningur við stjórnina nú 29% sem er örlítið meiri stuðningur en hún mældist með í mars.
Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 26. apríl til 31. maí 2012. Heildarúrtaksstærð
var 6.624 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 60,9%. Vikmörk eru 0,7-1,8%. Einstaklingar í úrtaki sem svöruðu í síma voru handahófsvaldir
úr þjóðskrá en þátttakendur í netkönnun voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.