Fylgi flokka ef kosið yrði til Alþingis í dag og stuðningur við ríkisstjórnina
08.05.2012Aukinn stuðningur við ríkisstjórnina - litlar breytingar á fylgi flokka. Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um þrjú prósentustig milli mánaða og mælist stuðningur við hana 31%. Stjórnin hefur endurheimt þann stuðning sem hún missti í mars en stuðningur við hana mælist svipaður og hann mældist í febrúar.
Liltar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Fylgi við Samstöðu minnkar um tvö prósentustig og segjast tæplega 7% þeirra sem tóku afstöðu ætla að kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi við hvorn stjórnarflokk eykst um eitt prósentustig og segjast nær 19% ætla að kjósa Samfylkinguna og tæplega 12% Vinstrihreyfinguna - grænt framboð færu kosningar fram í dag. Slétt 37% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem er prósentustigi minna en fyrir mánuði, tæplega 13% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn, næstum 6% Bjarta framtíð og ríflega 5% segjast myndu kjósa Dögun.
Tæplega 14% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og um 15% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 29. mars til 26. apríl 2012.
Heildarúrtaksstærð var 5.400 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 61,7%. Vikmörk eru 0,6-2,0%.
Einstaklingar í úrtaki sem svöruðu í síma voru handahófsvaldir úr þjóðskrá en þátttakendur í netkönnun voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.