Þjóðarpúlsinn

Forsetaframboð

08.05.2012

Þegar könnunin var framkvæmd höfðu sjö einstaklingar lýst yfir framboði til embættis forseta Íslands og var fólk spurt hvern þeirra það myndi kjósa ef kosið yrði nú. Langflestir þeirra sem tóku afstöðu nefndu Þóru Arnórsdóttur, eða ríflega 46% á meðan rúmlega 37% nefndu Ólaf Ragnar Grímsson, núverandi forseta. Tæplega 11% sögðust myndu kjósa Ara Trausta Guðmundsson og rúm 3% Herdísi Þorgeirsdóttur en um eða innan við 1% nefndu aðra frambjóðendur. Andrea Jóhanna Ólafsdóttir hafði ekki tilkynnt um framboð sitt þegar könnunin hófst og var hennar nafn því ekki talið upp.

Umtalsvert fleiri konur en karlar nefna Þóru eða rúmlega fimm af hverjum tíu konum á móti tæplega fjórum af hverjum tíu körlum. Kynjaskipting þeirra sem kjósa myndu Ólaf er hins vegar mun jafnari. Sá aldurshópur sem líklegastur er til að velja Þóru er fólk á aldrinum 30-39 ára en Ólafur Ragnar er vinsælastur meðal fólks 60 ára og eldra. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi eru töluvert ólíklegri til að nefna Ólaf en þeir sem hafa minni menntun að baki en er þessu öfugt farið með Þóru, þar sem líkur á að Þóra sé nefnd aukast með aukinni menntun svarenda. Ólafur hefur mest fylgi meðal þeirra sem myndu kjósa Framsóknar- eða sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag en Þóra meðal þeirra sem myndu kjósa aðra flokka.

 

 

Spurt var:
Eftirfarandi hafa lýst yfir framboði til embættis forseta Íslands. Hvert þeirra myndir þú kjósa ef kosið yrði til forseta í dag?
(Ari Trausti Guðmundsson, Ástþór Magnússon, Hannes Bjarnason, Herdís Þorgeirsdóttir, Jón Lárusson, Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir).
Breytilegt var í hvaða röð nöfn frambjóðenda birtust.

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 26. apríl - 4. maí 2012.
Svarhlutfall var 59,8%, úrtaksstærð 1.379 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang:
sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share