Þjóðarpúlsinn

Ákæra á hendur Geir Haarde - Þjóðin skiptist í tvo hópa

08.02.2012

Almenningur var spurður hvort hann væri þeirrar skoðunar að fella ætti niður ákæru á hendur Geir H. Haarde eða hvort hann væri þeirrar skoðunar að ekki ætti að fella hana niður. Ekki var marktækur munur á fjölda þeirra sem vildu að kæran yrði felld niður og þeirra sem vildu það ekki. Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar eftir bakgrunnsþáttum eru tvær breytur sem hafa áhrif á viðhorf fólks til spurningarinnar en þær eru hversu háar tekjur fólk hefur og hvernig það myndi kjósa ef kosið yrði til Alþingis núna.

Fólk er almennt líklegra til að vilja að ákæra á hendur Geir verði felld niður eftir því sem fjölskyldutekjur þess eru hærri. Rúmlega tveir af hverjum þremur þeirra sem eru með milljón eða meira í fjölskyldutekjur á mánuði vilja að ákæran verði felld niður á meðan rúmlega fjórir af hverjum tíu sem eru með minna en 250 þúsund krónur í fjölskyldutekjur á mánuði vilja það.

Tæplega einn af hverjum fimm sem styðja ríkisstjórnina vill að ákæran verði felld niður á meðan ríflega sjö af hverjum tíu sem styðja hana ekki vilja það. Stuðningurinn við niðurfellingu ákærunnar er mest hjá þeim sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag en rúmlega 94% þeirra styðja niðurfellingu kærunnar. Liðlega sjö af hverjum tíu sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn telja að fella ætti niður ákæruna en aðeins tæplega fjórðungur þeirra sem myndu kjósa Samfylkinguna og um 6% þeirra sem myndu kjósa Vinstrihreyfinguna – grænt framboð.

Spurt var:
Ert þú þeirrar skoðunar að fella eigi niður ákæru á hendur Geir H. Haarde eða ert þú þeirrar skoðunar að það eigi ekki að fella hana niður?

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 25. - 31. janúar 2012. Svarhlutfall var 67,3%, úrtaksstærð 1.350 einstaklingar 18 ára eða eldri af
öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang:
sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share