Þjóðarpúlsinn

Fylgi flokka ef kosið yrði til Alþingis í dag og stuðningur við ríkisstjórnina

06.02.2012

Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar milli mánaða

Helstu breytingar á fylgi flokkanna frá síðustu mælingu eru þær að fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um tvö prósentustig, en liðlega 36% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Þetta er svipað fylgi og flokkurinn mældist með nær allt árið 2011. Bæði Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn bæta við sig einu prósentustigi milli mánaða. Nær 22% segjast myndu kjósa Samfylkinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag og rösklega 15% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða. Tæplega 14% segjast myndu kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð, rösklega 3% Hreyfinguna og einn af hverjum tíu segist myndi kjósa aðra flokka en sæti eiga á Alþingi í dag.

Tæplega 16% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 15% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist óbreyttur milli mánaða en stuðningur við hana mælist nú 32%.

Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?


Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 5. til 31. janúar 2012. Heildarúrtaksstærð var 6.271
einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 65,5%. Vikmörk eru 0,7-1,8%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang:
sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share