Breytingar á ríkisstjórninni
02.02.2012
Breytingarnar í heild sinni
Landsmenn voru spurðir hversu ánægðir þeir væru með þær breytingar á ríkisstjórn Íslands sem tilkynnt var um nú um áramótin. Þegar á heildina er litið voru nær 46% óánægð með breytingarnar á meðan einungis tæp 27% voru ánægð með þær, en nær 28% sögðust hvorki ánægð né óánægð.

Eldra fólk er óánægðara með breytingarnar en yngra fólk, en yngra fólk er líklegra til að vera hvorki ánægt né óánægt en eldra fólk. Fólk er ánægðara með breytingarnar eftir því sem það hefur lengri menntun að baki. Mikill munur er svo eftir stjórnmálaskoðunum en þeir sem styðja ríkisstjórnina eru mun ánægðari með breytingarnar en þeir sem styðja hana ekki.
Atvinnuvegaráðuneyti
Næst var fólk spurt hversu ánægt það væri með fyrirhugaða sameiningu efnahags- og viðskiptaráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og iðnaðarráðuneytis í atvinnuvegaráðuneyti. Ríflega 45% voru óánægð með fyrirhugaða sameiningu á meðan rúmlega 32% voru ánægð, en nær 23% sögðust hvorki ánægð né óánægð.

Fólk var ánægðara með sameininguna eftir því sem það hefur lengri menntun að baki og mikill munur var á ánægju eftir stjórnmálaskoðunum, en þeir sem styðja ríkisstjórnina voru mun ánægðari með fyrirhugaða breytingu en þeir sem styðja hana ekki.
Þegar fólk var spurt út í ánægju sína með það að Steingrímur J. Sigfússon taki við hinu nýja atvinnuvegaráðuneyti sagðist 51% vera óánægt en tæplega 26% ánægð, og ríflega 23% hvorki ánægð né óánægð.

Fólk er ánægðara með það að Steingrímur taki við ráðuneytinu eftir því sem það er eldra og ánægðara eftir því sem það hefur lokið hærra menntunarstigi. Loks er mikill munur á ánægju fólks eftir stjórnmálaskoðun en þeir sem myndu kjósa Vinstri hreyfinguna – grænt framboð ef kosið yrði til alþingis í dag eru ánægðastir með það að Steingrímur hafi tekið við ráðuneytinu.
Brotthvarf Árna Páls Árnasonar og Jóns Bjarnasonarúr ríkisstjórn
Fólk hefur mismunandi skoðanir á brotthvarfi Árna Páls og Jóns Bjarnasonar úr ríkisstjórninni. Tæplega 42% eru óánægð með brotthvarf Árna, einn af hverjum fimm er ánægður og rúmlega 38% hvorki ánægð né óánægð. Nær 53% segjast hins vegar ánægð með brotthvarf Jóns úr ríkisstjórninni, ríflega 23% eru óánægð og um 24% hvorki ánægð né óánægð.
Eldra fólk er óánægðara með brotthvarf Árna úr ríkisstjórninni en yngra fólk, en yngra fólk er líklegra en eldra fólk til að vera hvorki ánægt né óánægt. Nokkur munur er á ánægju fólks eftir því hvar það stendur í stjórnmálum en þeir sem myndu kjósa Vinstri hreyfinguna – grænt framboð ef kosið yrði til Alþingis í dag eru ánægðastir með brotthvarf Árna úr ríkisstjórninni en þeir sem myndu kjósa Samfylkinguna eða Sjálfstæðisflokkinn eru óánægðastir.

Karlar eru frekar óánægðir með brotthvarf Jóns úr ríkisstjórninni en konur, eldra fólk frekar en yngra, og fólk á landsbyggðinni frekar en íbúar höfuðborgarsvæðisins. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi eru sáttari við brotthvarf Jóns úr ríkisstjórninni en þeir sem hafa minni menntun að baki, og þeir sem hafa hærri tekjur sáttari en þeir sem hafa lægri tekjur. Loks er munur á viðhorfi fólks eftir stjórnmálaskoðunum. Þeir sem myndu kjósa Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag eru ánægðastir með brotthvarf Jóns úr ríkisstjórninni en þeir sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn eru óánægðastir.

Ráðherraskipti í fjármálaráðuneyti
Fólk er almennt nokkuð hlutlaust gagnvart því að Oddný G. Harðardóttir hafi tekið við embætti fjármálaráðherra. Nær 31% þeirra sem tóku afstöðu er ánægt með það, 26% óánægð en 43% segjast hvorki
ánægð né óánægð.

Konur eru ánægðari með Oddnýju í stóli fjármálaráðherra en karlar, eldra fólk er ánægðara en yngra og íbúar höfuðborgarsvæðisins ánægðara en íbúar landsbyggðarinnar. Þeir sem myndu kjósa Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag eru ánægðastir með innkomu Oddnýjar en þeir sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn óánægðastir.
Rúmlega 48% þeirra sem tóku afstöðu eru ánægðir með það að Steingrímur J. Sigfússon gegni ekki lengur embætti fjármálaráðherra á meðan tæplega 15% eru óánægð en 37% segjast hvorki ánægð né óánægð. Eldra fólk er síður ánægt en yngra fólk, og þeir sem hafa lokið háskólaprófi síður en þeir sem hafa ekki háskólagráðu. Þeir sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag eru ánægðastir með það að Steingrímur víki sem fjármálaráðherra en þeir sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn koma á hæla þeirra, á meðan þeir sem myndu kjósa Vinstri hreyfinguna – grænt framboð eru óánægðastir.

Spurt var:
Á heildina litið, hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með þær breytingar á ríkisstjórn Íslands sem tilkynnt var um nú um áramótin?
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með fyrirhugaða sameiningu efnahags- og viðskiptaráðuneytis, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytis og iðnaðarráðuneytis í atvinnuvegaráðuneyti?
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með það að Steingrímur J. Sigfússon taki við hinu nýja atvinnuvegaráðuneyti?
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með brotthvarf Árna Páls Árnasonar úr ríkisstjórninni?
En með það að Oddný G. Harðardóttir hafi tekið við embætti fjármálaráðherra?
En með það að Steingrímur J. Sigfússon gegni ekki lengur embætti fjármálaráðherra?
En með brotthvarf Jóns Bjarnasonar úr ríkisstjórninni?
Niðurstöður sem hér birtast um viðhorf til breytinga á ríkisstjórninni eru úr netkönnun sem gerð var dagana 5. - 12. janúar 2012. Svarhlutfall var 64,9%, úrtaksstærð
1.350 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.