Forsetinn
31.01.2012Næsta kjörtímabil
Eins og kunnugt er hefur Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands gefið í skyn að hann muni ekki gefa kost á sér áfram í embætti á næsta kjörtímabili. Við spurðum landsmenn hver þeir vildu að gegndi embætti forseta Íslands á næsta kjörtímabili og var spurningin opin, þ.e. engir svarkostir gefnir upp.

Ríflega helmingur aðspurðra tók afstöðu og af þeim nefndu langflestir núverandi forseta, Ólaf Ragnar, eða nær 36%. Á eftir Ólafi nefndu flestir Rögnu Árnadóttur eða nær 18%. Aðrir voru nefndir af 5% þeirra sem tóku afstöðu eða færri, en listann má sjá á myndinni hér til hliðar.
Fleiri konur en karlar nefndu Rögnu Árnadóttur og fleiri meðal eldra fólks en yngra. Fleiri nefndu Ólaf Ragnar meðal íbúa landsbyggðarinnar en höfuðborgarsvæðisins, og fólk var ólíklegra til að nefna hann eftir því sem það hefur meiri menntun að baki, en líklegra til að nefna einhvern annan en þá sem oftast voru nefndir.
Misjafnt var eftir stjórnmálaskoðunum fólks hvern það nefndi sem næsta forseta. Flestir af þeim sem nefndu Ólaf Ragnar sögðust myndu kjósa Framsóknarflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag, flestir af þeim sem nefndu Rögnu sögðust myndu kjósa Samfylkinguna og flestir af þeim sem nefndu Davíð Oddsson Sjálfstæðisflokkinn.

Ánægja með forsetann
Þegar spurt var um ánægju með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sögðust nær sex af hverjum tíu vera ánægðir með störf hans. Síðast var spurt um ánægju með störf forsetans í febrúar 2009 og var þá aðeins 31% þeirra sem tóku afstöðu ánægt með störf hans en það var stuttu eftir hrun bankanna og búsáhaldabyltingin stóð sem hæst. Þar áður var spurt um ánægju með störf forsetans í janúar 2008 og var þá mun hærra hlutfall ánægt með störf hans eða 87% þeirra sem tóku afstöðu. Í upphafi kjörtímabilsins þar á undan, í mars 2004, var hins vegar svipað hlutfall ánægt með störf forsetans og nú eða 66% þeirra sem tóku afstöðu.


Yngra fólk er ánægðara með störf forsetans en þeir sem eldri eru og mikill munur er á ánægju fólks eftir stjórnmálaskoðunum. Minnst ánægja er með störf hans meðal þeirra sem myndu kjósa Samfylkinguna eða Vinstrihreyfinguna – grænt framboð ef kosið yrði til Alþingis í dag, mun meiri ánægja meðal þeirra sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn og mest ánægja meðal þeirra sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn.

Spurt var:
Hver myndir þú vilja að gegndi embætti forseta Íslands á næsta kjörtímabili?
Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands?
Niðurstöður sem hér birtast um það hver menn vilja að gegni embætti forseta Íslands á næsta kjörtímabili eru úr netkönnun sem gerð var dagana 5. - 12. janúar 2012.
Svarhlutfall var 64,8%, úrtaksstærð 2.700 einstaklingar. Niðurstöður um ánægju með störf Ólafs Ragnars Grímssonar eru úr netkönnun sem gerð var dagana 5. - 12.
janúar 2012. Svarhlutfall var 64,9%, úrtaksstærð 1.350 einstaklingar. Í báðum úrtökunum voru einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr
Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.