Efnahagshorfur fyrir árið 2012
29.12.2011Alþjóðleg könnun þar sem meðal annars var spurt um væntingar til efnahags árið 2012 var framkvæmd í 50 löndum af WIN/Alþjóðlegu Gallupsamtökunum en Capacent Gallup er aðili að samtökunum og sá um framkvæmdina hér á landi.
Svartsýni eykst í Evrópu og á heimsvísu
Könnunin hefur verið framkvæmd árlega í rúmlega þrjá áratugi og hefur niðurstaðan sjaldan verið neikvæðari en nú.
Á heimsvísu eru álíka margir bjartsýnir og svartsýnir en 31% fólks er vongott um efnahagshorfur ársins 2012 á meðan 34% telja að árið 2012 verði ár efnahagsörðugleika. Um 27% telja að næsta ár verði hvorki ár hagsældar né efnahagsörðugleika en 8% tóku ekki afstöðu.
Svartsýnin er mest í Evrópu, sérstaklega í Vestur-Evrópu, en á hæla hennar kemur Norður-Ameríka. Af þeim 50 löndum sem könnunin var framkvæmd í voru fleiri svartsýnir en bjartsýnir í 34 þeirra en fleiri bjartsýnir en svartsýnir í 15 þeirra. Í einu landi (Indlandi) var hlutfall svartsýnna og jartsýnna jafnt.
Í könnuninni er reiknaður út svokallaður væntingarstuðull þar sem hlutfall svartsýnna er dregið frá hlutfalli bjartsýnna. Svartsýni er mest í Frakklandi þar sem væntingarstuðullinn mælist -80% (svartsýnir eru 80 prósentustigum fleiri en bjartsýnir) en bjartsýni er mest í Nígeríu þar sem stuðullinn mælist +80% (bjartsýnir eru 80 prósentustigum fleiri en svartsýnir). Aðrar þjóðir eru þarna á milli, t.d. er væntingarstuðull í Bandaríkjunum -21% en +21% í Kína.
Af þeim tíu löndum þar sem væntingarstuðullinn lækkar mest eru níu Evrópulönd en þau eru Austurríki, Belgía, Svíþjóð, Þýskaland, Bosnía, Danmörk, Sviss, Finnland og Rússland. Auk þessara landa er svo Perú í Suður-Ameríku í hópi þeirra tíu landa sem lækka mest milli ára.
Á heimsvísu lækkar væntingarstuðullinn úr +2% á síðasta ári í -4% í ár.
Bjartsýni eykst á Íslandi
Á Íslandi er væntingarstuðullinn -31% þar sem 11% eru bjartsýn en 42% svartsýn. Flestir, eða 46% telja þó að árið 2012 verði hvorki ár hagsældar né efnahagsörðugleika en 1% tók ekki afstöðu. Væntingarstuðullinn hækkar úr -51% á síðasta ári, en þá hækkaði hann úr -65% frá árinu á undan.

Af þeim tíu löndum þar sem væntingarstuðullinn hækkar mest frá síðasta ári eru þrjú Evrópulönd og er Ísland eitt þeirra en hin tvö eru Rúmenía og Makedónía. Auk þessara landa eru fjögur Asíulönd og tvö Afríkuríki í hópi þeirra tíu landa þar sem væntingarstuðullinn hækkar mest milli ára.
Ungt fólk bjartsýnna en eldra
Yngra fólk er almennt bjartsýnna á efnahagshorfur næsta árs en þeir sem eldri eru. Á heimsvísu mælist væntingarstuðull fólks undir 30 ára +9% (bjartsýnir eru 9 prósentustigum fleiri en svartsýnir) en hann mælist -5% hjá fólki á aldrinum 30-50 ára (svartsýnir 5 prósentustigum fleiri en bjartsýnir), -19% hjá fólki á aldrinum 51-65 ára og -32% hjá fólki eldra en 65 ára.
Á Íslandi er stuðullinn –6% hjá fólki yngri en 30 ára, -36% hjá fólki á aldrinum 30-50 ára og –41% hjá fólki eldra en 50 ára.

Væntingar og landsframleiðsla

Á myndinni hér fyrir ofan má sjá upplýsingar um landsframleiðslu í þátttökulöndunum og væntingar íbúa þeirra til þróunar efnahagsmála. Í gula reitnum er Ísland og önnur lönd þar sem landsframleiðsla er tiltölulega lág og svartsýni ríkir þegar spurt er um væntingar til efnahagsástands. Í bláa reitinn falla lönd þar sem landsframleiðsla er tiltölulega lág en fólk er bjartsýnt um efnahagshorfur. Í rauða reitnum eru lönd þar sem landsframleiðsla er tiltölulega há en svartsýni ríkir um horfur í efnahagsmálum. Í þann flokk falla margar ríkustu þjóðir heimsins, þ.á.m. svokölluð G7 lönd sem eru Bandaríkin, Kanada, Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Japan – auk Bretlands en það tók ekki þátt í könnuninni í ár. Í fyrra féll Ísland í þennan flokk en þá var landsframleiðsla á mann hærri en nú.
Spurt var:
Telur þú að 2012 verði ár hagsældar eða ár efnahagsörðugleika?
Niðurstöður sem hér birtast um viðhorf til ársins 2012 eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 24. nóvember til 2. desember 2011.
Heildarúrtaksstærð var 1.350 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og svarhlutfall var 63,1%.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.