Þjóðarpúlsinn

Fylgi flokka ef kosið yrði til Alþingis í dag og stuðningur við ríkisstjórnina

06.12.2011

Aukið fylgi við Sjálfstæðisflokkinn

Helstu breytingar á fylgi flokkanna milli október og nóvember eru þær að fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um tvö prósentustig, en 38% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Þetta er mesta fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur mælst með síðan í febrúar 2008. Að sama skapi minnkar fylgi við Framsóknarflokkinn og Vinstrihreyfinguna - grænt framboð um prósentustig hjá hvorum flokki. Naumlega 15% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn færu kosningar fram í dag og tæplega 14% Vinstrihreyfinguna - grænt framboð.

Nær 22% þeirra sem taka afstöðu til þess hvaða flokk þeir myndu kjósa segjast myndu kjósa Samfylkinguna, sem er aukning um hálft prósentustig milli mánaða og ríflega 2% segjast myndu kjósa Hreyfinguna sem er um hálfu prósentustigi færri en í síðasta mánuði. Um 10% segjast myndu kjósa aðra flokka en þá sem eiga sæti á Alþingi í dag.

Slétt 15% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rúmlega 15% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist sá sami í nóvember og í október, en þriðjungur þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja hana.

 

Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?


Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 26. október til 30. nóvember 2011.
Heildarúrtaksstærð var 10.212 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 63,2%. Vikmörk eru 0,6-1,6%. Einstaklingar í úrtaki sem svöruðu í síma voru handahófsvaldir úr þjóðskrá en þátttakendur í netkönnun voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang:
sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share