Þjóðarpúlsinn

Jólin

29.11.2011

Tilhlökkun eða kvíði

Kannað var í Þjóðarpúlsi Capacent Gallup hvaða hug fólk bæri til þess að jólin væru á næsta leyti. Í ljós kom að rétt rúmlega tveir af hverjum þremur landsmönnum hlakka til jólanna á meðan ríflega 3% landsmanna kvíða þeim. Nær 14% sögðust hinsvegar bæði hlakka til jólanna og kvíða þeim en tæplega 16% hvorki hlakka til jólanna né kvíða þeim.

Konur hlakka frekar til jólanna en karlar. Þeir sem hafa hærri fjölskyldutekjur hlakka líka almennt frekar til jólanna en þeir sem hafa lægri fjölskyldutekjur, á meðan þeir tekjulægri eru líklegri en tekjuhærri til að kvíða þeim. Þannig segjast rúmlega 12% þeirra sem hafa lægri fjölskyldutekjur en 250 þúsund krónur á mánuði kvíða jólunum á meðan enginn þeirra svarenda sem hefur milljón eða meira á mánuði í fjölskyldutekjur kvíðir jólunum.

Jólaljósin

Næst var almenningur spurður hvenær honum þætti hæfilegt að fólk setti upp fyrstu jólaljósin á eða við heimili sín. Flestir, eða rúmlega helmingur svarenda, nefndu fyrsta sunnudag í aðventu sem að þessu sinni ber upp þann 27. nóvember. Ríflega 21% nefndi svo 1. desember, 17% sögðu að það væri við hæfi að setja þau upp í nóvember og nær 8% fannst hæfilegt að þau færu upp um miðjan desember.

Konur vilja sjá jólaljósin fyrr uppi en karlar, en nær 79% kvenna finnst hæfilegt að setja þau upp í nóvember eða fyrsta sunnudag í aðventu sem nú ber upp í nóvember eins og áður sagði, á móti rúmlega 56% karla. Rúmlega 39% karla vilja hins vegar fá ljósin upp í desember á móti ríflega 19% kvenna. Það kemur svo kannski ekki á óvart að þeim sem hlakka til jólanna finnst hæfilegt að setja ljósin fyrr upp en þeim sem kvíða jólunum, eða þeim sem hvorki hlakka til þerra né kvíða þeim, eins og sést í meðfylgjandi greiningu.

Spurt var:
Nú eru jólin á næsta leyti, myndir þú segja að þú hlakkir til jólanna eða myndir þú segja að þú kvíðir þeim?
Hvenær finnst þér hæfilegt að fólk setji upp fyrstu jólaljósin á eða við heimili sín?

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 16. - 23. nóvember 2011.
Svarhlutfall var 65,6%, úrtaksstærð 1.350 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang:
sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share