Fylgi flokka ef kosið yrði til Alþingis í dag og stuðningur við ríkisstjórnina
08.11.2011Fylgi flokka áfram stöðugt
Um þriðjungur þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina sem er örlítið lægra hlutfall en í síðasta mánuði.

Nær engar breytingar mælast á fylgi flokkanna milli september og október. Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um tæpt prósentustig meðal þeirra sem nefna einhvern flokk en að sama skapi eykst fylgi við aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag um tæpt prósentustig. Nær 36% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag, ríflega 21% segist myndi kjósa Samfylkinguna, tæplega 16% Framsóknarflokkinn, næstum 15% Vinstrihreyfinguna - grænt framboð og 3% Hreyfinguna. Um 10% segjast myndu kjósa aðra flokka en þá sem eiga sæti á Alþingi í dag. Nær 14% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rösklega 15% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá hvernig fylgi flokka skiptist eftir kjördæmum.

Framsóknarflokkurinn mælist með mun minna fylgi á höfuðborgarsvæðinu en í landsbyggðarkjördæmunum. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í suðvestur– og suðurkjördæmum, Samfylkingin mælist með mest fylgi í Reykjavík en minnst fylgi í norðaustur– og suðurkjördæmum. Vinstrihreyfingin - grænt framboð mælist með mest fylgi í Norðausturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmi norður en fylgi Hreyfingarinnar dreifist nokkuð jafnt á kjördæmin. Fylgi annarra flokka en þeirra sem sæti eiga á Alþingi í dag mælist meira á höfuðborgarsvæðinu en í landsbyggðarkjördæmunum.
Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 29. september til 27. október 2011.
Heildarúrtaksstærð var 8.257 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 61,5%. Vikmörk eru 0,6-1,6%.
Einstaklingar í úrtaki sem svöruðu í síma voru handahófsvaldir úrþjóðskrá en þátttakendur í netkönnun voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.