Málefni Þjóðkirkjunnar
04.07.2011Málefni íslensku Þjóðkirkjunnar hafa verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið og spurði Capacent Gallup landsmenn nokkurra spurninga sem tengjast málefnum kirkjunnar.
Meirihluti enn hlynntur aðskilnaði
Capacent Gallup hefur reglulega mælt viðhorf landsmanna til aðskilnaðar ríkis og kirkju. Stuðningur við aðskilnað hefur mælst óvenju hár síðastliðin tvö ár og er sú staða óbreytt í þessari mælingu. Hátt í þrír af hverjum fjórum sem segjast annað hvort vera hlynntir eða andvígir aðskilnaði ríkis og kirkju segjast hlynntir honum eða 73%, en þegar þeir eru teknir með sem segjast hvorki hlynntir né andvígir aðskilnaði er hlutfall þeirra sem eru hlynntir aðskilnaði tæplega 58%


Mikill munur er á viðhorfi til aðskilnaðar eftir aldri en svarendur eru almennt hlynntari honum eftir því sem þeir eru yngri. Af þeim sem taka afstöðu með eða á móti eru nær 87% þeirra sem eru yngri en 30 ára hlynnt aðskilnaði en rúmlega 58% þeirra sem eru 60 ára eða eldri.
Ánægja með störf biskups fer enn dvínandi
Í mælingu Capacent Gallup árið 2004 voru nær 62% landsmanna ánægð með störf Karls Sigurbjörnssonar biskups, í fyrra voru aðeins rúmlega 24% ánægð með störf hans og það hlutfall er nú komið niður í tæplega 19% meðal þeirra sem taka afstöðu. Þegar skoðuð er ánægja með störf biskupa aftur í tímann sést að ánægjan hefur ekki áður mælst eins lítil og nú.


Eldra fólk er mun líklegra til að vera ánægt með störf biskups en þeir sem yngri eru. Þannig eru tæplega 9% þeirra sem eru yngri en 30 ára ánægð með störf biskups og 60% óánægð meðal þeirra sem taka afstöðu en á móti eru nær 34% fólks 60 ára og eldra ánægð en 46% óánægð.
Traust til Þjóðkirkjunnar fer enn dvínandi
Traust til Þjóðkirkjunnar hefur farið dvínandi síðustu ár og er það um þremur prósentustigum lægra nú en í febrúar sl. Aðeins segjast um þrír af hverjum tíu nú bera mikið eða fullkomið traust til Þjóðkirkjunnar.


Enn er mikill munur á viðhorfi fólks eftir aldri en rúmlega17% fólks yngra en 30 ára bera mikið traust til Þjóðkirkjunnar á móti naumlega 43% fólks 60 ára og eldra. Ef aðeins eru skoðaðir þeir sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna er hlutfall þeirra sem bera fullkomið eða mikið traust til hennar nær 36%.
Úrsagnir úr Þjóðkirkjunni
Á vef Hagstofu Íslands má sjá tölur um fjölda fólks í Þjóðkirkjunni og breytingar þar á. Í þessari könnun var hins vegar athugað hvort þeir svarendur sem voru skráðir í Þjóðkirkjuna þegar könnunin fór fram hefðu íhugað að segja sig úr henni. Í ljós kom að rúmlega 28% þeirra sem voru í Þjóðkirkjunni höfðu hugleitt að segja sig úr henni á síðustu vikum, en í síðustu mælingu fyrir tæplega ári síðan var þetta hlutfall 31%. Fleiri höfðu íhugað að segja sig úr Þjóðkirkjunni meðal þeirra sem yngri eru en meðal eldra fólks.

Þeir sem voru í Þjóðkirkjunni voru einnig spurðir um líkurnar á því á þeir segðu sig úr henni á næstunni og af þeim sem tóku afstöðu töldu nær 15% það líklegt eða öruggt sem er sama hlutfall og í síðustu mælingu fyrir tæpu ári síðan. Heldur færri telja það þó ólíklegt eða óhugsandi nú en í fyrra. Konur telja ólíklegra en karlar að þær segi sig úr Þjóðkirkjunni og þeir sem eldri eru telja það mun ólíklegra en þeir sem yngri eru.


Spurt var:
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aðskilnaði ríkis og kirkju?
Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með störf Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands?
Hversu mikið eða lítið traust berð þú til Þjóðkirkjunnar?
Ert þú skráð(ur) í Þjóðkirkjuna?
Hefur þú íhugað að segja þig úr Þjóðkirkjunni á síðustu vikum eða hefur þú ekki íhugað það?
Hversu líklegt eða ólíklegt er að þú segir þig úr Þjóðkirkjunni á næstunni?
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 26. maí til 28. júní 20 11. Heildarúrtaksstærð var 6.514 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 62,4%. Vikmörk á landsvísu eru 0,4- 1,7%. Spurningar um málefni kirkjunnar eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 16. til 23. júní 20 11. Heildarúrtaksstærð var 1.385 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 58,6%. Í öllum úrtökunum voru einstaklingar valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Allir Þjóðarpúlsar