VINNUMARKAÐURINN, BREYTTAR AÐSTÆÐUR – BREYTT STARFSUMHVERFI
Nýlegar rannsóknir á íslenskum vinnumarkaði gefa mikilvægar upplýsingar um þann veruleika og þær áskoranir sem stjórnendur standa nú frammi fyrir. Á ráðstefnunni, sem haldin verður þann 10. september, verður breytingum á íslenskum vinnumarkaði lýst og rætt um þær áherslur sem mikilvægar eru í fari framtíðarleiðtoga þjóðarinnar.
Dagskrá
| 12:30 | Skráning |
| 13:00 | Setning Fundarstjóri Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknarstjóri Capacent Gallup. |
| 13:15 | Breytingar á vinnumarkaði Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri Capacent Ráðninga. Gunnar fjallar um hvaða áhrif samdráttur á vinnumarkaði hefur haft á framboð á starfsfólki, væntingar umsækjenda til launa og mikilvægi ímyndar fyrirtækja í starfsmannaöflun. |
| 13:55 | Líðan, viðhorf, væntingar, fyrir og í kreppu Tómas Bjarnason, sviðsstjóri starfsmanna- og kjararannsókna Capacent Gallup. Tómas fjallar um áhrif breyttra aðstæðna á viðhorf fólks eins og þau endurspeglast í niðurstöðum VR könnunarinnar, en VR hefur árlega látið gera könnun meðal félagsmanna sinna sem lítur að helstu þáttum í innra starfsumhverfi fyrirtækja. Velt er upp mögulegum skýringum á þeim breytingum sem sjá má frá fyrri árum. |
| 14:35 | Hlé |
| 14:55 | Helping people to reenter the job market Erik Bernskov, forstöðumaður Capacent IKU í Danmörku og stjórnarmaður í samtökum fyrirtækja um starfsendurhæfingu. Capacent IKU hefur sérhæft sig í að aðstoða Dani sem eru við það að missa vinnuna eða eru án atvinnu, að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Erik Bernskov kynnir þær leiðir sem Danir hafa farið og hver árangurinn hefur verið af þeim. |
| 15:35 | Úr hverju í hvað? – Nýir tímar kalla á öðruvísi forystu Bjarni Snæbjörn Jónsson, partner hjá Capacent og Vilmar Pétursson, partner hjá Capacent. Rannsóknir á grunngildum og áherslum á vinnustöðum í fjölda landa sýna að niðurstöður fyrir Ísland eru nokkuð frábrugðnar löndunum í kringum okkur. Þessar niðurstöður varpa mikilvægu ljósi á hvaða áherslur eru líklegar til þess að endurspegla þá leiðtoga sem ná árangri í breyttu umhverfi. |
| 16:15 | Samantekt |
| 16:30 | Ráðstefnuslit |
Ráðstefnan var haldin á Hótel Hilton fimmtudaginn 10. september.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Haugen, gunnar.haugen@capacent.is.