Stjórnhættir í fjármálaþjónustu

Capacent boðar til ráðstefnu, fimmtudaginn 15. október, um stjórnarhætti í fjármálaþjónustu þar sem fjallað verður um þær miklu breytingar sem framundan eru á þessu sviði.

Mjög hefur verið kallað eftir strangara regluverki í kjölfar bankahrunsins bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi og ljóst að kröfur munu aukast gagnvart þeim sem stunda hverskonar fjármálatengda þjónustu.

Hér á landi er fyrirsjáanlegt að almenn fjármálaþjónustufyrirtæki, tryggingafélög og lífeyrissjóðir munu þurfa að byggja upp traust með því að innleiða skýrari og gegnsærri stjórnarhætti.

Á ráðstefnunni munu innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um þetta viðfangsefni bæði með tilliti til þeirra reglna sem í farvatninu eru hér á landi og erlendis og innleiðingar regluverks þannig að það verði órjúfanlegur hluti af starfsháttum fyrirtækjanna.

Dagskrá
12:30 Skráning
13:00 Setning
Ráðstefnustjóri Bjarni Snæbjörn Jónsson, partner hjá Capacent Ráðgjöf.
13:05 Ávarp
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
13:25 Aðkoma FME að stjórnarháttum fjármálafyrirtækja, tryggingafélaga og lífeyrissjóða
Árný Guðmundsdóttir, FME.
14:20 Hlé
14:35 Fresh Solutions for Trusted Banking
Morel Fourman, Gaiasoft International.
15:35 Fyrirspurnir og umræður
16:00 Ráðstefnuslit


Ráðstefnan verður haldin á Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 15. október.

Nánari upplýsingar veitir Bjarni Snæbjörn Jónsson, bjarni.jonsson@capacent.is.

Print Bookmark and Share