Richard Barret

Vinnustofa um innleiðingu gilda og mikilvægi þess fyrir rekstrarárangur fyrirtækja verður haldinn hjá Háskólanum í Reykjavík föstudaginn 12. september kl. 8:30 - 12:00.  Skráning á opnihaskolinn.is

SAMSPIL GILDA, MENNINGAR OG ÁRANGURS


Fyrirlestur Richard Barrett í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 11. september kl. 9:00 – 12:00.

  • Hvað eru gildi og hvaða þýðingu hafa þau fyrir samstarf og árangur?
  • Hvernig móta gildi menningu fyrirtækja og samfélaga?
  • Hvernig má meta þau verðmæti sem liggja í menningu fyrirtækja og samfélaga (Cultural Capital)?
  • Hver eru grunngildi íslensku þjóðarinnar og viðhorf til samfélags og atvinnulífs?


Capacent hefur framkvæmt rannsókn á gildismati Íslendinga með sérstakri aðferðafræði Richard Barretts, hjá Cultural Transformation Tools, sem hefur rannsakað og unnið með fyrirtækjum og stjórnvöldum í um 40 löndum.

Richard mun fjalla um niðurstöður rannsóknar Capacent og bera saman við sambærilega rannsókn sem Capacent framkvæmdi í Danmörku fyrir stuttu.

Rannsókn Capacent gefur innsýn í persónuleg gildi Íslendinga og viðhorf þeirra til þess hverjar megináherslur eru í íslensku samfélagi og atvinnulífi í dag. Rannsóknin beinist jafnframt að því hvaða áherslur þjóðin telur æskilegt að ríki í samfélaginu til framtíðar. Með samanburði á þessum niðurstöðum fæst vísbending um samræmi milli núverandi áherslna og vilja þjóðarinnar í því efni.

Richard Barrett er viðurkenndur fyrirlesari á heimsvísu og hefur skrifað fjöldann allan af bókum um vinnustaðamenningu og stjórnun sem byggir á markvissri innleiðingu á gildum.
Print Bookmark and Share