Einstaklega vel heppnuð heimsókn mesta hugsuðar á sviði stefnumótunar
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum sem lætur sig stefnumótun og stjórnun varða, að Dr. Michael E. Porter, prófessor við Harvard-háskóla, var staddur á Íslandi þann 2. október síðastliðinn í boði Capacent.
Prófessor Porter hóf daginn á að kynna niðurstöður skýrslu um samkeppnishæfni Íslands á ráðstefnu á Hótel Nordica, sem sótt var af 300 manns. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra voru meðal gesta og flutti sá síðarnefndi ávarp við upphaf ráðstefnunnar þar sem hann minntist meðal annars á mikilvægi klasakenninga prófessors Porters við uppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðinni.
Eftir að Prófessor Porter hafði lokið máli sínu, tóku við pallborðsumræður þar sem Dr. Gylfi Magnússon, Baldur Pétursson, Hannes Smárason, Þórdís Sigurðardóttir og Sigurjón Þ. Árnason spurðu prófessorinn nánar um niðurstöður skýrslunnar og möguleika Íslands á alþjóðavettvangi.
Bjarni Snæbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Capacent í Danmörku, var ráðstefnustjóri.
Síðar um daginn fjallaði Prófessor Porter um lykilatriði stefnumótunar og rekstur fyrirtækja í einkar líflegum klukkutíma löngum fyrirlestri sem bar heitið ,,What is Strategy?” og fram fór Háskólabíói. Rúmlega 900 manns sóttu fyrirlesturinn og var mál gesta að Prófessor Porter hefði leitt menn í allan sannleika um stefnumótun, um leið og hann hrakti ýmsar ranghugmyndir um málefnið.
Haft er eftir Hákoni Gunnarssyni, sem hafði veg og vanda af komu Prófessors Porter, að Porter hefði verið einkar ánægður með dvöl sína hér á landi, þó stutt væri, og talaði hann um að koma aftur innan tíðar svo að þeir sem misstu af ræðum hans á mánudaginn þurfa ekki að örvænta.
Starfsfólk Capacent vill þakka öllum þeim sem á hlýddu kærlega fyrir auðsýndan áhuga og sérstaklega fulltrúum þeirra samstarfsaðila sem gerðu heimsókn Porters mögulega; Háskóla Íslands, FL Group, Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, 365 Miðlum og Landsbankanum.
Efni fyrirlestranna tveggja er unnt að nálgast hér að neðan.
Glærur um samkeppnishæfni Íslands
Glærur um ,,What is Strategy?”
World Economic Forum gefur út Skýrslu um samkeppnishæfi þjóða 2006-2007. Ísland hækkar um tvö sæti samkvæmt alþjóðlegu samkeppnisvísitölu hagvaxtar og er nú í 14. sæti af 125 hagkerfum heimsins. Í skýrslunni Ísland í alþjóðlegum samanburði sem Iðntæknistofnun hefur gefið út er greining á samkeppnishæfni Íslands byggð á skýrslu World Economic Forum, The Global Competiviness Report.