Tölvuárásir verða sífellt stærri áhættuþáttur í rekstri fyrirtækja og stofnana. Enginn er óhultur en með fyrirbyggjandi aðgerðum er hægt að draga mjög úr hættunni á því að fyrirtæki þitt eða stofnun verði fyrir tjóni vegna tölvuárása eða að viðkvæm gögn fari á flakk.
Capacent og iSoft halda ráðstefnu um tölvuöryggismál fimmtudaginn 10. febrúar 2011 á Hilton þar sem farið verður yfir hvernig helstu hættur sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir í þessum efnum og hvernig hægt er að draga úr líkum á árásum tölvuhakkara.
Meðal fyrirlesara eru Wayne Burke ráðgjafi og yfirkennari hjá EC-Council (International Council of Electronic Commerce Consultants), Paula Januszkiewicz , forstjóri og eigandi CQURE í Varsjá og Csaba Barta sem er ráðgjafi og kennari á námskeiðum EC-Council ásamt því að vera yfirmaður hjá Deloitte í Ungverjalandi í ráðgjöf í öryggismálum og verndum trúnaðarupplýsinga.
Þau hafa öll mikla reynslu af öryggismálum tölvukerfa og eru vinsælir fyrirlesarar í þeim efnum á ráðstefnum út um allan heim.
Wayne mun í öðrum fyrirlestra sinna fjalla um hvernig valdajafnvægi þjóða og stórfyrirtækja getur breyst með nýtingu upplýsingatækni. Hann mun svo í síðari fyrirlestrinum fjalla um hvernig hakkarar brjótast inn í kerfi opinberra aðila á nokkrum mínútum.
Csaba mun gefa okkur sýn á hvernig hakkarar hegða sér innan kerfis brotaþola. Hann hefur þróað hermihugbúnað sem keyrir bæði á Windows 2008 SP2 netþjónum sem og Windows 7 umnverfi. Hann hefur þróað hermihugbúnað sem keyrir bæði á Windows 2008 SP2 netþjónum sem og Windows 7 umhverfi.
Sigurjón Þórðarson, ráðgjafi hjá Capacent mun fjalla um mannlega þáttinn og velta vöngum yfir því hvernig við getum elft okkur með aukinni þekkingu því sá sem notar upplýsingatæknina er oftar en ekki veikasti hlekkurinn í öryggiskeðjunni.
Loks mun Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar hjá Póst- og fjarskiptastofnun fjalla um virkni og gæði fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu og stofnun öryggis- og viðbragðsteymis (CERT) vegna hættunnar á netárásum.
Meðal efnis á ráðstefnunni eru fyrirlestrar um þær aðferðir sem hakkarar beita við að brjótast inn í tölvukerfi, hvernig hægt er að verjast árásum og hvernig hakkarar hegða sér innan kerfis.
Nánari upplýsingar veita Steingrímur Sigurgeirsson hjá Capacent steingrimur.sigurgeirsson@capacent og Sif Helgadóttir hjá iSoft sif@tsk.is
Sjá dagskrá ráðstefnunnar
EC-Council er leiðandi fyrirtæki í heiminum á sviði tölvuöryggismála og sér m.a. um þjálfun öryggissérfræðinga fyrir FBI, CIA og bandaríska varnarmálaráðuneytið.
Skráning og verð


