Framleiðni og mannauðsstjórnun

Capacent boðar til ráðstefnu, fimmtudaginn 20. janúar sem ber yfirskriftina: "Framleiðni og mannauðsstjórnun - Hvernig er hægt að ná árangri á umbrotatímum?"

Þar verður farið yfir hugtakið framleiðni og það sett í samhengi við þær aðferðir mannauðsstjórnunar sem hafa áhrif á hana. James Bywater frá SHL í Bretlandi skýrir frá því hvernig próf og mælingar geta verið notuð til að velja saman fólk sem skilar bestum árangri við tilteknar aðstæður og Bergþóra Hrund Ólafsdóttir mun fjalla um hvernig Betware hefur náð árangri með þessum aðferðum. Þá mun Ægir Már Þórisson fjalla um það hvernig stjórnendur geta "hætt" að hafa áhyggjur af því hvernig starfsfólk ver tíma sínum með beitingu árangursmælikvarða og frammistöðumats.

Nánar um fyrirlesara má lesa hér.

Dagskrá

08:00 Skráning og morgunkaffi
08:30 Setning
Ráðstefnustjóri Sigríður Ólafsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent.
08:35

Hvað er málið með Íslendinga og framleiðni?

Hólmar Svansson, Capacent Ráðgjöf

09:00

Val á umbrotatímum - Selection in Turbulent Times

James Bywater, SHL

 09:45  Kaffihlé
10.00

Hópprófílar hjá Betware

 Bergþóra Hrund Ólafsdóttir, mannauðsstjóri Betware

10:30

Facebook og Frammistöðumat

Ægir Már Þórisson, framkvæmdastjóri Capacent Ráðgjöf

11:00 Fyrirspurnir og umræður
11:30 Ráðstefnuslit


Ráðstefnan verður haldin í Gullteig á Grand Hótel fimmtudaginn 20. janúar

Nánari upplýsingar veitir Hinrik Sigurður Jóhannesson, hinrik.johannesson@capacent.is eða Steingrímur Sigurgeirsson steingrimur.sigurgeirsson@capacent.is

Erindi Bergþóru Hrundar

 Erindi Ægis Más Þórissonar um Facebook og frammistöðumat

 

Erindi James Bywater um val á umbrotatímum

Erindi Hólmars Svanssonar um Íslendinga og framleiðni

 

 

 

Print Bookmark and Share