Dr. Robert S. Kaplan, höfundur "The Balanced Scorecard" verður á Íslandi þann
17. september 2008
Dr. Kaplan kemur hingað til lands á vegum Capacent en samstarfsaðilar verkefnisins eru Umferðarstofa, Háskóli Íslands, Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga og Orkuveita Reykjavíkur. Einnig hefur Viðskiptaráð Íslands komið að verkefninu.
Dr. Robert Kaplan er einn fremsti hugsuður á sviði stjórnunarvísinda um þessar mundir. Framlag Kaplan til stefnumótunarfræðanna á sér fáar hliðstæður. Balanced Scorecard kerfið er eitt það besta sinnar tegundar til að samtvinna aðgerðir fyrirtækja við stefnu þeirra og markmið. Kerfið hjálpar stjórnendum að fá skýra sýn á stefnu fyrirtækja og samstilla starfsfólk, viðskiptaeiningar og auðlindir undir eina stefnu.
Í rannsóknum sínum, skrifum, fyrirlestrum og ráðgjöf hefur Kaplan þróað leiðir til að tengja saman kostnaðar- og árangursstjórnunarkerfi við innleiðingu á stefnu og framúrskarandi rekstur.
Dr. Robert Kaplan og samstarfsfélagi hans Dr. David Norton hafa skrifað saman fimm bækur um „The Balanced Scorecard“ sem lýsa hvernig kerfið virkar og leiðum til að innleiða kerfið. Bækurnar hafa gjörbreytt landslagi stefnumótunar hjá fyrirtækjum og gert Kaplan að einum áhrifamesta fyrirlesara á sviði stefnumótunar og stjórnunar.
Dr. Robert Kaplan er Baker Foundation Prófessor við Harvard Business School og fyrrverandi skólastjóri Industrial Administration háskólans, Carnegie-Mellon University.
„The Execution Premium - Linking Strategy to Operations for Competitive Advantage“.
Fyrirlesturinn er byggður á efni nýjustu bókar Dr. Kaplan og Dr. David P. Norton, sem kom út á þessu ári, um tengsl Balanced Scorecard við stefnumótun fyrirtækja og opinberra aðila. Hér er um nýtt og afar áhugavert efni að ræða.
Verð: 7.900 kr.
Afsláttur til háskólastúdenta á afgreiðslustöðum midi.is
Sala miða á midi.is
Capacent stendur einnig fyrir ráðstefnu á Grand Hótel en þar munu Orkuveita Reykjavíkur, Umferðarstofa og Capacent skýra frá reynslu sinni af innleiðingu Balanced Scorecard. Dr. Kaplan mun taka þátt í umræðum um framsögur og eiga lokaorð.
Fundarstjóri verður Stefán Svavarsson, aðalendurskoðandi Seðlabanka Íslands.
Við skráningu á ráðstefnuna tekur Sveinn Sverrisson
Heimsókn Robert Kaplan til Íslands er einstakur viðburður sem enginn stjórnandi eða áhugamaður um stjórnun ætti að láta fram hjá sér fara.

HÁSKÓLABÍÓ: FYRIRLESTUR KL. 09:00-10:30

GRAND HÓTEL: RÁÐSTEFNA KL. 13:00-15:00