Fréttir

Birtir yfir þjóðinni?

07.06.2012

Capacent Gallup hóf í maí árið 2010 mælingar á nokkrum þáttum sem tengjast líðan og stöðu Íslendinga. Birting þessara samfélagsmælikvarða hófst um áramótin 2010/2011 og hafa þeir verið hluti af hinum reglulega Þjóðarpúlsi Capacent síðan. Mælikvörðunum er ætlað að veita upplýsingar um stöðuna á ýmsum þáttum sem snerta lífið í landinu á hverjum tímapunkti.

Sjá má þessa mælikvarða og þróun þeirra undanfarin tvö ár á undirsíðu Þjóðarpúlsins sem sjá má hér en þeir eru lífsmat, neysla, væntar heimilistekjur, andleg líðan og fjöldi daga frá vinnu/námi vegna eigin veikinda.

Lífsmat byggir á svokölluðum Lífsmatsstiga Cantril og er líklega sá þessara mælikvarða sem gefur einna bestar upplýsingar um heildarhag þjóðarinnar á hverjum tímapunkti, þ.e.a.s. hvernig fólk metur líf sitt þegar mælingin er framkvæmd og hvernig það sér líf sitt þegar til framtíðar er litið.

Mælingar á lífsmati skipta fólki í þrjá flokka. Í fyrsta lagi fólk sem dafnar. Fólk í þessum hópi metur líf sitt í augnablikinu gott og sér fyrir sér að það verði jafn gott eða betra eftir fimm ár. Í öðru lagi er fólk sem er í basli, þ.e.a.s. fólk sem er annað hvort svartsýnt á stöðu lífs síns eftir 5 ár eða telur sig ekki vera á góðum stað í augnablikinu. Þriðji hópurinn er síðan fólk sem er í þrengingum. Í þessum flokki eru einstaklingar sem gefa lífi sínu lága einkunn þegar mælingin fer fram og sjá ekki fram á betri tíma eftir fimm ár.

Þegar mælingar hófust mat um 52% þjóðarinnar líf sitt með neikvæðum hætti (í basli) en 45% með jákvæðum (dafna). Þróunin á undanförnum tveimur árum hefur hins vegar verið sú að stöðugt fleiri dafna og æ færri eru í basli.

Aldrei hafa fleiri metið líf sitt með jákvæðum hætti en í nýjustu mælingu Capacent eða rúm 67%. Jafnframt hafa aldrei færri verið í basli frá því mælingar hófust eða 29%. Stökkið milli mánaða er verulegt en í síðustu mælingu maímánaðar mátu tæp 61% líf sitt með jákvæðum hætti en tæp 37% með neikvæðum.

Þótt langtímaþróunin sé stöðug geta sveiflur milli mánaða skýrst af utanaðkomandi þáttum og má til gamans velta fyrir sér hvort að einmuna veðurblíða á landinu öllu í byrjun júnímánaðar hafi átt þátt í að lyfta lund landans með þessum hætti.

Sá hópur fólks sem er í hvað erfiðastri stöðu (í þrengingum) hefur hins vegar haldist nokkuð stöðugur frá upphafi mælinga. Í maí 2010 mátu 3% líf sitt svo að þeir væru í þrengingum en í nýjustu mælingu eru 3,6% í þeim hópi.

Þróun Lífsmats endurspeglast einnig í mælikvarðanum andleg líðan en tæp 48% sögðust upplifa mikla hamingju/gleði en ekki streitu/áhyggjur í nýjustu mælingu Capacent, sem er hæsta hlutfall frá upphafi. Þá sögðust tæp 8% upplifa mikla streitu/áhyggjur, en ekki mikla hamingju/gleði, sem er nálægt meðaltali mælinga.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share