Fréttir

Þjóðarpúlsinn: Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst

04.04.2012

Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst mikið milli febrúar og mars, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Capacent Gallup, en flokkurinn eykur fylgi sitt um fimm prósentustig milli mánaða eftir nokkra lækkun mánuðinn á undan og er nú með svipað fylgi og í desember síðastliðnum.

 Af þeim sem tóku afstöðu segjast rúmlega 38% ætla að kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi við Samstöðu minnkar um tvö prósentustig milli mánaða og segjast nær 9% ætla að kjósa hana nú. Fylgi hvors stjórnarflokks um sig lækkar um eitt prósentustig milli mánaða og segjast tæplega 18% ætla að kjósa Samfylkinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag og rúmlega 11% Vinstrihreyfinguna - grænt framboð.

Fylgi Framsóknarflokksins stendur í stað milli mánaða en slétt 13% myndu kjósa flokkinn. Fylgi Bjartrar framtíðar eykst lítillega milli mánaða og mælist hún nú með tæplega 5% fylgi. Fylgi Hreyfingarinnar mælist nær 2% en ef fylgi þeirra samtaka sem standa að Dögun er tekið saman mælist Dögun með slétt 5% fylgi. Rösklega 15% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 17% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um þrjú prósentustig milli mánaða og mælist stuðningur við hana 28%. Er þetta minnsti stuðningur sem núverandi ríkisstjórn hefur mælst með. Ef horft er til mælinga Gallup aftur til ársbyrjunar 1993 hefur sitjandi ríkisstjórn aðeins einu sinni mælst með minni stuðning en nú en það var í janúar 2009 er þáverandi ríkisstjórn mældist með rúmlega 26% stuðning.

Nánar um könnunina hér.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share