Íslenska ánægjuvogin kynnt á fimmtudag
21.02.2012Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2011 verða kynntar á morgunverðarfundar á vegum Faghóps um Stefnumótun og Balanced Scorecard á fimmtudaginn. Fundurinn verður haldinn í Veisluturninum á Smáratorgi kl. 08.30-09.45.
Íslenska ánægjuvogin er samstarfsverkefni Capacent, Samtaka iðnaðarins og Stjórnvísi.
Dagskrá:
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, fjallar um þjónustuáherslu Nova en fyrirtækið átti ánægðustu viðskiptavinina á Íslandi samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2010.
Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska Gámafélagsins, nefnir fyrirlestur sinn "Verðmætin í ruslinu" en fyrirtækið var valið fyrirtæki ársins í starfsmannakönnun VR árin 2010 og 2011.
Jóna Karen Sverrisdóttir, verkefnastjóri Ánægjuvogarinnar hjá Capacent, kynnir niðurstöður Ánægjuvogarinnar 2011.
Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi veitir viðurkenningar þeim fyrirtækjum sem skoruðu hæst í rannsókn Ánægjuvogarinnar 2011.
Davíð Lúðvíksson forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins stjórnar fundinum.
Skráning á fundinn fer fram á veg Stjórnvísis. www.stjornvisi.is
Verð er kr. 2.950 og greiðist á staðnum.
Allar fréttir