Fréttir

Átök á vinnumarkaði og efnahagstengd mótmæli

15.02.2012

Alþjóðleg könnun þar sem meðal annars var spurt um væntingar fólks til átaka á vinnumarkaði og efnahagstengdra mótmæla á árinu var framkvæmd í lok síðasta árs af WIN – Alþjóðlegu Gallupsamtökunum meðal meira en 50.000 einstaklinga víðs vegar um heiminn. Capacent Gallup er aðili að samtökunum og sá um framkvæmdina hér á landi.

Á heimsvísu mælist aukinn ótti við átök á vinnumarkaði og efnahagstengd mótmæli, en 55% svarenda telja að slíkt muni aukast á þessu ári á meðan 13% telja að draga muni úr átökum á vinnumarkaði. Fjórðungur telur að engar breytingar verði en 7% tóku ekki afstöðu.

Í könnuninni er reiknaður út svokallaður væntingarstuðull þar sem hlutfall þeirra sem telja að átök muni minnka er dregið frá hlutfalli þeirra sem telja að þau muni aukast og er væntingarstuðullinn á heimsvísu því 42%. Því hærri sem stuðullinn er þeim mun svartsýnna er fólk þegar spurt er um væntingar til átaka á vinnumarkaði og efnahagstengdra mótmæla á árinu. Á Íslandi er þessi stuðull 31%.

Óttinn við að átök á vinnumarkaði muni aukast á árinu er mest áberandi meðal ríkra þjóða og þjóða sem hafa verið að styrkjast efnahagslega en minnst áberandi meðal fátækari þjóða. Á myndinni hér fyrir neðan sést munur á væntingarstuðli eftir heimshlutum.

Þróun á Íslandi
Á myndinni hér fyrir neðan sést hvernig væntingarstuðullinn á Íslandi hefur þróast gegnum árin. Væntingar fólks til þess að átök á vinnumarkaði myndu aukast voru síðast í hámarki árið 2007 en eins og sést á myndinni hafa væntingarnar áður verið neikvæðar í gegnum tíðina. Ljóst er að sveiflurnar hanga saman með því hvenær kjarasamningar margra stéttarfélaga í landinu eru lausir.

* Á árunum 1987 - 2009 hljómaði spurningin svona:„Telur þú að á næsta ári verði verkföll og átök á íslenskum vinnumarkaði meiri, svipuð eða minni en á þessu
ári?“. Ekki var mælt 2010.

Á myndinni hér fyrir ofan sést væntingarstuðull mismunandi þjóða miðað við landsframleiðslu þeirra. Í efri hlutanum til hægri eru þjóðir þar sem landsframleiðsla er tiltölulega há og hátt hlutfall fólks telur að átök á vinnumarkaði muni aukast á árinu. Í þessum fjórðungi eru margar þjóðir Vestur-Evrópu auk Bandaríkjanna, Kanada, Japan og Hong Kong. Í efri hlutanum til vinstri eru þjóðir þar sem landsframleiðsla er tiltölulega lág og hátt hlutfall fólks telur að átök á vinnumarkaði muni aukast á árinu. Væntingarstuðull Íslendinga er 31% og fellur Ísland í þennan fjórðung. Við erum þó alveg um miðbikið og á mörkum þess að falla í aðra fjórðunga. Í neðri hlutanum til vinstri eru þjóðir þar sem landsframleiðsla er tiltölulega lág en væntingar um óróa á vinnumarkaði eru frekar litlar. Í þennan fjórðung falla meðal annars flest þeirra Afríkuríkja sem könnunin var framkvæmd í, auk annarra þjóða sem eru flestar frekar veikar fjárhagslega. Af þeim löndum sem könnunin var gerð í er Austurríki svo það eina þar sem landsframleiðsla er há og fólk á von á minnkandi átökum á
vinnumarkaði á árinu.

Spurt var:
Telur þú að efnahagstengd mótmæli á Íslandi og átök á íslenskum vinnumarkaði muni aukast, minnka eða haldast óbreytt árið 2012?

Niðurstöður sem hér birtast um átök á vinnumarkaði eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 24. nóvember til 2. desember 2011.
Heildarúrtaksstærð var 1.350 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og svarhlutfall var 63,1%.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang:
sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share