Styrkur til Einstakra barna
11.01.2012
Capacent hefur afhent samtökunum Einstök börn 150 þúsund króna styrk en styrkurinn er veittur fyrir hönd Viðhorfahóps Gallup. Fyrir hverja könnun sem þátttakendur í Viðhorfahópi Gallup svara rennur ákveðin upphæð til góðgerðarmála.
Einstök börn eru stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa og jafnvel ógreinda sjúkdóma og skerðingar.Meðal fyrri styrkþega má nefna Fjölskylduhjálp Íslands, ABC Barnahjálpar, Geðhjálpar, Styrktarfélags Krabbameinssjúkra barna, Krabbameinsfélagsins, Barnaspítala Hringsins og Barnaheill. Þátttakendur í Viðhorfahópnum velja þau félög sem þeir vilja styrkja í könnun Capacent Gallup.
Á myndinni er Vilborg Helga Harðardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Capacent rannsókna að afhenda Herði Björvinssyni frá Einstökum börnum styrkinn.
Allar fréttir