Fréttir

Elvar Steinn Þorkelsson til Capacent

10.01.2012

Elvar Steinn Þorkelsson hefur hafið störf hjá Capacent sem ráðgjafi á sviði upplýsingatækni en Capacent hefur á síðustu mánuðum unnið að því að efla þjónustu sína á sviði upplýsingatækni.

Elvar var einn af stofnendum Teymis og var framkvæmdastjóri fyrirtækisins árin 1995-2002. Elvar setti á laggirnar og var framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi árin 2003-2006. Að því búnu starfaði hann sem stjórnandi hjá Microsoft í Rússlandi og austur-evrópu höfuðstöðvum Microsoft í Þýskalandi um nokkurra ára skeið. Elvar útskrifaðist í sumar sem leið með meistarapróf í viðskiptafræðum (MBA) frá Kentháskólanum í Canterbury. Elvar er jafnframt tölvunarfræðingur að mennt frá Kalíforníuháskólanum í Chico.
Elvar mun starfa með ráðgjafateymi Capacent  sem veitir viðskiptavinum alhliða ráðgjöf við hagnýtingu upplýsingatækni og við að nýta betur þau verðmæti sem felast í fjárfestingum fyrirtækja í upplýsingatækni.
Með aðkomu Elvars er markmiðið að styrkja þann hóp sérfræðinga sem fyrir er,  útvíkka núverandi þjónustuleiðir og bæta við nýjum.
Capacent hefur lagt vaxandi áherslu á upplýsingatækniráðgjöf. Capacent er m.a. Microsoft Gold Partner í hugbúnaðarleyfismálum og hefur jafnframt lagt ríka áherslu á eflingu þjónustu á sviði upplýsingaöryggis.

Nýir ráðgjafar Capacent á sviði upplýsingatækni:

Árni Haukur Árnason, ráðgjafi á sviði upplýsingatækni og hugbúnaðarleyfa. Hann er með meistaragráðu í upplýsingatækni frá Árósarháskóla og hefur á undanförnum árum starfað sem sérfræðingur hjá Opnum kerfum og Teris.

Sigurbergur Árnason, ráðgjafi á sviði hugbúnaðarleyfa. Sigurbergur er sérfræðingur í Microsoft hugbúnaðarleyfum og hefur starfað við sérhæfða ráðgjöf á sviði hugbúnaðarleyfa (Software Asset Management) síðan 2004 og hefur tilheyrandi viðurkenningar frá Microsoft.

Sæmundur Melstað, ráðgjafi á sviði upplýsingatækni. Hann er tölvunarfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands  með um 25 ára reynslu í upplýsingatæknimálum. Sæmundur starfaði sem  upplýsingatæknistjóri Húsasmiðjunnar árin 1991-2001 og síðan sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni  hjá sama fyrirtæki árin 2001-2011

Theódór R. Gíslason, ráðgjafi á sviði öryggismála. Theódór er tölvunarfræðingur og hefur unnið við tæknileg öryggismál í á annan áratug og framkvæmt veikleikaúttektir fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum Íslands. Að auki hefur Theódór verið virkur á alþjóðlegum vettvangi upplýsingaöryggismála með þróun öryggistóla, birtingu alvarlegra öryggisveikleika, og forritum til að nýta öryggisveikleika. 

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share