Fréttir

Ánægja fólks með líf sitt

05.01.2012

Alþjóðleg könnun þar sem fólk var meðal annars spurt um ánægju með líf sitt var framkvæmd í nær 60 löndum af WIN/Alþjóðlegu Gallupsamtökunum en Capacent Gallup er aðili að samtökunum og sá um framkvæmdina hér á landi.

Ánægja á Íslandi meiri en í heiminum almennt

Á heimsvísu eru 53% fólks ánægð með líf sitt en 13% óánægð, 31% er hvorki ánægt né óánægt með líf sitt og 3% tóku ekki afstöðu. Í könnuninni er reiknaður út svokallaður ánægjustuðull þar sem hlutfall óánægðra er dregið frá hlutfalli ánægðra. Á heimsvísu eru ánægðir 40 prósentustigum fleiri en óánægðir svo heildaránægjustuðullinn er 40%.

Íslendingar eru mjög ánægðir með líf sitt í samanburði við aðrar þjóðir, en 73% Íslendinga eru ánægðir með líf sitt og 7% óánægð, 19% eru hvorki ánægð né óánægð og 1% tók ekki afstöðu. Ánægjustuðull Íslendinga er
því 66%.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um landsframleiðslu í þátttökulöndunum og ánægju íbúa þeirra með líf sitt. Í gula reitnum eru lönd þar sem landsframleiðsla er tiltölulega lág og fólk er tiltölulega óánægt með líf sitt á meðan í græna reitnum eru lönd þar sem landsframleiðsla er tiltölulega há og fólk er yfir meðallagi ánægt með líf sitt. Í bláa reitnum er svo Ísland og önnur lönd þar sem landsframleiðsla er tiltölulega lág en fólk er almennt ánægt með líf sitt og í rauða reitnum lönd þar sem landsframleiðsla er há en fólk almennt óánægt með líf sitt.

Munur eftir heimshlutum

Talsverður munur er á ánægju fólks með líf sitt eftir heimshlutum. Ánægjan mælist minnst í Arabalöndunum en þar er ánægjustuðullinn 20% og Austur-Evrópu þar sem stuðullinn er 25%, en ánægjan mælist mest í Afríku þar sem ánægjustuðullinn er 66% og í Rómönsku-Ameríku þar sem hann er 63%. Þrátt fyrir að landsframleiðsla Norður-Ameríku sé hærri en nær allra Vestur-Evrópulanda, og íbúar hennar séu bjartsýnni á efnahagshorfur næsta árs en Vestur-Evrópubúar, eru þeir almennt óánægðari með líf sitt. Ánægjustuðull Vestur-Evrópubúa er að meðaltali 50% en stuðull Norður-Ameríkubúa er 31%.

 

Hvað hefur áhrif á ánægju fólks?

Fjárhagsleg staða

Könnunin náði bæði til fátækustu og ríkustu landa heims þar sem um fimmtíufaldur munur er á landsframleiðslu. Það sem skýrði helst mun á því hversu ánægt fólk var með líf sitt var ekki það hversu mikið fé það hafði á milli handanna heldur það hversu mikilla tekna það aflaði miðað við aðra landa sína. Meðal þeirra sem afla hæstra tekna í sínu landi (20% hæstu) eru nær tvöfalt fleiri ánægðir með líf sitt (hamingjustuðull 51%) en meðal þeirra sem afla lægstra tekna (20% lægstu) þar sem hamingjustuðullinn er 27%.

Aldur, staða á vinnumarkaði og trú

Ánægjustuðull mælist lægstur hjá fólki á aldrinum 51-65 ára. Á heimsvísu er hann 33%, en til samanburðar er hann 44% hjá fólki undir þrítugu og 43% hjá fólki eldra en 65 ára. Á Íslandi er hann 60% en til samanburðar er hann 79% hjá fólki undir þrítugu og 71% hjá fólki eldra en 65 ára. Ánægjustuðull meðal atvinnulausra er á heimsvísu helmingi lægri en hjá meðalmanni, eða 20%, og ánægjustuðull fólks sem komið er á eftirlaun er 34%. Á Íslandi er ánægjustuðull hjá þeim sem eru útivinnandi 66% en 36% hjá þeim sem eru atvinnulausir eða komnir á eftirlaun.
Á heimsvísu mælist ánægjustuðull almennt hærri hjá þeim sem segjast trúaðir en þeim sem segjast ekki trúaðir. Undantekning er þó þeir sem tilheyra rétttrúnaðarkirkjunni. Hjá þeim sem tilheyra henni eða eru ekki trúaðir er stuðullinn 27-28% en hann er á bilinu 42-54% hjá kaþólskum, mótmælendum, gyðingum, múslimum og hindúum. Á Íslandi er þessu öfugt farið því ánægjustuðull trúaðra er á bilinu 62-66% á meðan trúleysingjar mælast með ánægjustuðul upp á 70%.

 

Spurt var:
Ert þú ánægð(ur), óánægð(ur) eða hvorki ánægð(ur) né óánægð(ur) með líf þitt?

Niðurstöður sem hér birtast um ánægju með lífið eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 24. nóvember til 2. desember 2011.
Heildarúrtaksstærð var 1.350 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og svarhlutfall var 63,1%.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang:
sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share