Fylgi flokka ef kosið yrði til Alþingis í dag og stuðningur við ríkisstjórnina
04.01.2012Litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða
Af þeim tæplega 70% sem nefna einhvern flokk sem þeir myndu kjósa færu kosningar til Alþingis fram í dag segjast ríflega 38% myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 21% að þeir myndu kjósa Samfylkinguna, rösklega 14% Framsóknarflokkinn, tæplega 14% Vinstrihreyfinguna - grænt framboð og tæplega 3% Hreyfinguna. Einn af hverjum tíu segist myndi kjósa aðra flokka en sæti eiga á Alþingi í dag.
Nær 15% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 16% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.
Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um eitt prósentustig milli mánaða en stuðningur við hana mælist nú 32%.

Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 1. til 29. desember 2011.
Heildarúrtaksstærð var 5.218 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 63,8%. Vikmörk eru 0,6-2,0%.
Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.