Ásta Bjarnadóttir til Capacent
04.01.2012

Ásta Bjarnadóttir hefur hafið störf hjá Capacent sem stjórnunarráðgjafi með sérhæfingu á sviði mannauðsstjórnunar og vinnu- og skipulagssálfræði.
Ásta hefur stýrt starfsmanna- og mannauðsmálum hjá Háskólanum í Reykjavík, Íslenskri erfðagreiningu og Hagkaupum auk þess að stunda kennslu og rannsóknir á sviði stjórnunar og mannauðsstjórnunar. Hún er einn af stofnendum CRANET rannsóknaverkefnsins um íslenska mannauðsstjórnun og hefur aðstoðað mörg fyrirtæki og stofnanir við að ná árangri og innleiða stefnu í gegnum betri stjórnun mannauðs. Þá hefur hún starfað í fjölmörgum hæfnis- og valnefndum vegna ráðninga í lykilstöður.
Ásta er með doktorsgráðu í vinnu- og skipulagssálfræði frá Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum. Nú síðar í mánuðinum kemur út í 2. útgáfu hjá JPV-útgáfu bókin Starfsmannaval eftir Ástu.