Mælikvarði lífsmats byggir á svörum við tveimur spurningum Cantril Lífsánægjustigans. Fólk er beðið um að ímynda sér stiga með þrepum sem eru númeruð frá 0 neðst í stiganum, sem lýsi versta mögulega lífi og upp í 10 efst í stiganum sem lýsir besta mögulega lífi. Í flokkinn „Dafna“ eru þeir sem sjá sig fyrir sér í 7. þrepi eða ofar og áætla að eftir 5 ár muni þeir muni standa í þrepi 8 eða ofar. Í flokknum „Í þrengingum“ eru þeir sem núna sjá sig fyrir sér í þrepum 0 til 4 á Cantril Lífsánægjustiganum og búast við að vera í þrepum 0 til 4 eftir 5 ár. Þeir sem hvorki „Dafna“ né eru „Í þrengingum“ eru sagðir vera „Í basli“. Spurningarnar eru lagðar fyrir í netkönnun hjá Viðhorfahópi Gallup þar sem um 400 manns eru spurðir í viku hverri. Niðurstöður byggja á rúllandi 2 vikna meðaltali.