Mælikvarði væntinga um heildartekjur heimilisins byggir á spurningu um hvort fólk búist við því að heildartekjur heimilisins aukist, dragist saman eða standi í stað á næstu 6 mánuðum.
Hver punktur byggir á mánaðarlegri mælingu sem gerð er í fyrstu viku hvers mánaðar. Spurningarnar eru lagðar fyrir í netkönnun hjá Viðhorfahópi Gallup þar sem um 1200 manns eru spurðir í viku hverri.