Um Capacent

Capacent er leiðandi þekkingarfyrirtæki með um 500 sérfræðinga á öllum Norðurlöndunum, þar af um 100 hér á Íslandi. Hlutverk okkar er að nýta þekkingu til að bæta árangur viðskiptavina á öllum sviðum og skapa þeim með því áþreifanleg verðmæti. Sérstaða Capacent er fólgin í einstakri nálgun við áskoranir viðskiptavina með samspili rannsókna, ráðgjafar, ráðninga og þjálfunar. Þekkingargrunnur Capacent mótast af fjölbreyttum rannsóknum, yfirgripsmikilli þekkingu og traustu samstarfi við fjölmörg alþjóðleg fyrirtæki.

Breytingar fela í sér tækifæri. Sérfræðingar Capacent hafa yfirgripsmikla þekkingu og aðstoða fyrirtæki og stofnanir við margvísleg verkefni, allt frá hugmyndum að innleiðingu breytinga. Við hjálpum þér að...

  • kanna hug viðskiptavina og starfsmanna
  • mæla ímynd og skilgreina markhópa
  • móta framtíðarsýn, stefnu og skipulag
  • skilgreina mælikvarða og mæla árangur
  • finna og ráða rétta fólkið
  • þjálfa stjórnendur
  • meta arðsemi verkefna
  • verðmeta fyrirtæki
  • bæta verkferli og hagræða í rekstri
  • innleiða ný gæðakerfi
  • bæta stjórnkerfi og stjórnendaupplýsingar
  • velja og innleiða ný upplýsingakerfi
  • nýta upplýsingatækni með ýmsum hætti og margt fleira.


Print Bookmark and Share