Viðhorfahópur Gallup

Viðhorfahópur Capacent er verkefni sem sett hefur verið á stofn til þess að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir geti á skömmum tíma fengið greinargóðar upplýsingar um stöðu mála í þjóðfélaginu. Viðhorfahópurinn samanstendur af ríflega 15.000 einstaklingum og er stöðugt uppfærður með nýjum þátttakendum.
Valið er í Viðhorfahópinn með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá og geta þátttakendur ekki verið sjálfvaldir. Starfsfólks Capacent hefur samband við fólk bréf- eða símleiðis og býður því að taka þátt í Viðhorfahópnum. Tryggt er að hópurinn endurspegli ávallt íslensku þjóðina og með það að leiðarljósi er vísindalegum aðferðum beitt til að tryggja gæði úrtaksins.  Ólíkt „könnunum“ með sjálfvöldum úrtökum gefur þessi aðferð kost á alhæfingum um þýðið eða markhópinn.
Á þennan hátt getur Capacent tekið púlsinn á samfélaginu á árangursríkari og skjótari hátt en ella og þannig komið til móts við sífellt auknar kröfur um hraða og áreiðanlega upplýsingagjöf.

Skoðun þín skiptir máli!
Skilningur á viðhorfum fólks til fjölbreyttra málefna er mikilvægur, enda liggja þessi viðhorf til grundvallar stefnumótunarvinnu fyrirtækja og stofnana. Með því að koma skoðunum sínum á framfæri í rannsóknum Capacent getur fólk því haft bein áhrif á stefnumótun og þróun á vöru og þjónustu. Trú okkar er að þátttaka í verkefninu komi öllum til góða. Markaðsaðilar munu fá aðgang að dýrmætum upplýsingum um væntingar og viðhorf fólks til fjölbreyttra málefna og almenningur fær í auknum mæli þjónustu sniðna að sínum þörfum.

Nafnleynd 
Capacent leggur mikið upp úr trúnaði og öruggri meðferð persónuupplýsinga. Allar upplýsingar sem Capacent fær um einstaklinga eða fyrirtæki eru varðveittar á öruggan hátt og gilda strangar reglur um notkun þeirra. Við framsetningu gagna er þess gætt að ekki sé hægt að rekja svör til einstaklinga.

Við störfum eftir ströngum siðareglum sem settar eru af alþjóðasamtökum markaðsrannsóknarfyrirtækja - ESOMAR. Við virðum þau lög sem Persónuvernd starfar eftir og setur um geymslu og meðferð persónuupplýsinga.
Capacent safnar aldrei upplýsingum um einstaklinga án þeirra vitneskju og samþykkis.

Capacent veitir þriðja aðila aldrei upplýsingar um svarendur í könnunum án þeirra samþykkis.

  • Þátttakendur í Viðhorfahópnum munu reglulega svara könnunum á netinu eða í gegnum síma og eiga möguleika á að vinna úttekt í verslunarmiðstöð.  Capacent veitir auk þess reglulega styrki til góðgerðarfélaga sem valin eru af þátttakendum hópsins.
  • Kaupendur kannana, þ.e. fyrirtæki sem nýta sér þjónustu Capacent, fá aldrei aðgang að svörum einstaklinga.
  • Þeir starfsmenn Capacent sem hafa aðgang að persónulegum upplýsingum hafa ríka skyldu um að virða trúnað við svarendur og hafa skrifað undir samning þess efnis.
  • Þátttakendum í könnunum er ávallt frjálst að neita að svara einstaka spurningum eða könnun í heild sinni.
Print Bookmark and Share