Skráning í Viðhorfahópinn
Viðhorfahópur Gallup er verkefni sem sett hefur verið á stofn til þess að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir geti á skömmum tíma fengið greinargóðar upplýsingar um stöðu mála í þjóðfélaginu. Viðhorfahópurinn samanstendur af ríflega 15.000 einstaklingum og er stöðugt uppfærður með nýjum þátttakendum.
Valið er í Viðhorfahópinn með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá og geta þátttakendur ekki verið sjálfvaldir. Spyrlar Capacent Gallup hafa samband við fólk og bjóða því að taka þátt í Viðhorfahópnum. Tryggt er að hópurinn endurspegli ávallt íslensku þjóðina og með það að leiðarljósi er vísindalegum aðferðum beitt til að tryggja gæði úrtaksins. Ólíkt „könnunum“ með sjálfvöldum úrtökum gefur þessi aðferð kost á alhæfingum um þýðið eða markhópinn.
Á þennan hátt getur Capacent Gallup tekið púlsinn á samfélaginu á árangursríkari og skjótari hátt en ella og þannig komið til móts við sífellt auknar kröfur um hraða og áreiðanlega upplýsingagjöf.
Heimasvæði Viðhorfahóps
Skoðun þín skiptir máli!
Skilningur á viðhorfum fólks til fjölbreyttra málefna er mikilvægur, enda liggja þessi viðhorf til grundvallar stefnumótunarvinnu fyrirtækja og stofnana. Með því að koma skoðunum sínum á framfæri í rannsóknum Gallup getur fólk því haft bein áhrif á stefnumótun og þróun á vöru og þjónustu. Trú okkar er að þátttaka í verkefninu komi öllum til góða. Markaðsaðilar munu fá aðgang að dýrmætum upplýsingum um væntingar og viðhorf fólks til fjölbreyttra málefna og almenningur fær í auknum mæli þjónustu sniðna að sínum þörfum.
Nafnleynd
Gallup leggur mikið upp úr trúnaði og öruggri meðferð persónuupplýsinga. Allar upplýsingar sem Gallup fær um einstaklinga eða fyrirtæki eru varðveittar á öruggan hátt og gilda strangar reglur um notkun þeirra. Ekki er hægt að rekja svör til einstaklinga.
Við störfum eftir ströngum siðareglum sem settar eru af alþjóðasamtökum markaðsrannsóknarfyrirtækja - ESOMAR. Við virðum þau lög sem Persónuvernd starfar eftir og setur um geymslu og meðferð persónuupplýsinga og tilkynnum allar kannanir okkar til hennar.
Gallup safnar aldrei upplýsingum um einstaklinga án þeirra vitneskju og samþykkis. Við söfnum ekki upplýsingum um svarendur í könnunum okkar með öðrum aðferðum til dæmis með því að keyra svör saman við upplýsingaskrár fyrirtækja eða stofnana eða við opinberar skrár.
Gallup veitir þriðja aðila aldrei upplýsingar um svarendur í könnunum án þeirra samþykkis.

- Þátttakendur í Viðhorfahópnum munu reglulega svara könnunum á netinu eða í gegnum síma og fá hóflega þóknun að launum fyrir erfiði sitt.
- Kaupendur kannana, þ.e. fyrirtæki sem nýta sér þjónustu Gallup, fá aldrei aðgang að svörum einstaklinga. Svör einstaklinga er ekki hægt að rekja til þeirra.
- Þeir starfsmenn Gallup sem hafa aðgang að persónulegum upplýsingum hafa ríka skyldu um að virða trúnað við svarendur og hafa skrifað undir samning þess efnis.
- Þátttakendum í könnunum er ávallt frjálst að neita að svara einstaka spurningum eða könnun í heild sinni.