Skoðun þín skiptir máli!
Vitneskja um viðhorf fólks til ólíkra málefna er mikilvæg, enda liggja þessi viðhorf til grundvallar stefnumótunarvinnu fyrirtækja og stofnana. Með því að koma skoðunum þínum áframfæri í rannsóknum Capacent getur þú því haft bein áhrif á stefnumótun og þróun vöru og þjónustu.
Við erum rannsóknarfólk og reynum aldrei að selja þátttakendum í könnunum okkar neitt.
- Við gætum fyllsta trúnaðar við þátttakendur í rannsóknum
- Capacent leggur mikið upp úr trúnaði og öruggri meðferð persónuupplýsinga. Allar upplýsingar sem Capacent fær um einstaklinga eða fyrirtæki eru varðveittar á öruggan hátt og gilda strangar reglur um notkun þeirra.
- Viðskiptavinir Capacent Rannsókna, fá aldrei aðgang að svörum einstaklinga. Við framsetningu gagna er þess gætt að ekki sé hægt að rekja svör til einstaklinga.
- Þátttakendum í könnunum er ávallt frjálst að neita að svara einstökum spurningum eða könnun í heild sinni.
- Viðstörfum eftir ströngum siðareglum sem settar eru af alþjóðasamtökum markaðsrannsóknarfyrirtækja - ESOMAR. Við virðum þau lög sem Persónuvernd starfar eftir og setur um geymslu og meðferðpersónuupplýsinga.