Námskeiðsframboð
Capacent býður upp á mikið úrval námskeiða og þjálfunar á sviðum stjórnunar, stefnumótunar, mannauðsstjórnunar, sölu og markaðsmála, fjármála og rekstrar, persónulegrar færni og liðsheildar. Megináhersla í okkar námskeiðs og þjálfunarframboði er á lausnir sem eru sérsniðnar að þörfum einstakra fyrirtækja og stofnana en einnig er boðið uppá opin námskeið.
Námið sem þú notar í vinnunni
Á námskeiðum Capacent er leitast við að miðla þeirri miklu þekkingu sem starfsfólk Capacent hefur yfir að ráða á sviði rannsókna, ráðninga og ráðgjafar. Styrkur okkar felst í þeim möguleikum að tengja saman þekkingu og hagnýtar aðferðir. Við leggjum áherslu á okkar námskeið séu hagnýt og þátttakendur fái þjálfun í aðferðum sem nýtast þeim í starfi strax að loknu námskeiði.
Á undanförnum árum höfum við í auknum mæli unnið með ýmiss konar matstæki á okkar námskeiðum sem felst í því að áður en til námskeiðs kemur er framkvæmt mat á stöðu þátttakenda, hópa eða fyrirtækja á ákveðnum lykilþáttum sem unnið er með á námskeiðunum. Þetta gerir námskeiðin markvissari og auðveldar mat á árangri.
Samvinna við Opna háskólann
Capacent hefur á undanförnum misserum verið í samstarfi við Opna háskólann í Reykjavík um námskeiðahald. Þetta hefur opnað möguleika á að tengja okkar námskeið við kröfur háskóla fyrir þá viðskiptavini sem þess óska. Einnig veitir þetta okkur tækifæri til enn frekari þróunar á námi og þjálfun er nýtist íslensku atvinnulífi.
Nánari upplýsingar:
Vilmar Pétursson (vilmar.petursson@capacent.is)