Marga veikleika er að finna í flestum upplýsingakerfum og það getur reynst erfitt að viðhalda öryggi þeirra. Mikilvægt er að fyrirtæki geri sér grein fyrir hversu greiðan aðgang utanaðkomandi aðilar hafa að viðkvæmum trúnaðarupplýsingum. Capacent hefur áralanga reynslu af öryggisúttektum á upplýsingakerfum og er með sérfræðinga á heimsmælikvarða í þessum efnum á sínum snærum.
Í úttekt getur falist:
- Hugbúnaðarúttekt
- Gagnagrunnsúttekt
- Eldveggja- og netbeinaúttekt
- Innbrotsprófanir frá ytri netum
- Innbrotsprófun frá innraneti
- Hnitmiðaðar prófanir, t.d. er hægt að komast í tölvupóstinn hjá forstjóra?
- Árvekni starfsmanna
Með því að þekkja veikleika þíns upplýsingakerfis ertu í betri stöðu til að bæta öryggi kerfa og upplýsingavernd almennt.
Með hnitmiðaðri veikleikaprófun er hægt að:
- Komast að veikleikum í hugbúnaði, bæði aðkeyptum og sérsmíðuðum
- Finna öryggisholur í uppsetningu gagnagrunna
- „Opna húddið“ á eldveggjum og netbúnaði og finna veikleika netkerfa
- Komast að því hvort heimasíða fyrirtækisins sé nægjanlega örugg og hvort hægt sé að komast inn á staðarnet fyrirtækisins út frá henni
- Sannreyna hvort hægt sé að komast í tölvupóst forstjóra og lykilstjórnenda með sömu réttindum og almennur notandi hefur
- Komast að því hvort starfsmenn séu vel á verði og upplýstir um utanaðkomandi ógnir
Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Róbert Rafnsson, partner (olafur.rafnsson@capacent.is)
Sími: 840 2000
Theódór R. Gíslason (theodor.gislason@capacent.is)
Sími 892 5165
