Capacent Glacier

Capacent Glacier er framsækið, alþjóðlegt fjármálaráðgjafarfyrirtæki í nánu samstarfi við Glacier Partners í New York. Félögin veita óháða ráðgjöf tengda kaupum og sölum á fyrirtækjum, fjármögnun og fjárhagslegri endurskipulagningu.  Við leggjum metnað okkar í að veita fyrsta flokks ráðgjöf byggða á trausti og trúnaði við viðskiptavininn. Ráðgjafar okkar hafa áralanga og víðtæka reynslu af að ná árangri fyrir viðskiptavininn, byggða á árangursríkum innlendum og alþjóðlegum verkefnum. Öflugt tengslanet gerir okkur kleift að vinna með fjárfestum og fyrirtækjum í atvinnulífinu hérlendis sem og erlendis.

Capacent Glacier byggir á grunni Capacent sem er stærsta norræna ráðgjafafyrirtækið og eitt stærsta og öflugasta þekkingarfyrirtæki landsins. Tilurð Capacent má rekja til 2005 þegar IMG og KPMG Ráðgjöf sameinuðu krafta sína. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið mikið í gegnum samruna innan lands sem utan. Starfsmenn Capacent eru í dag um 500 talsins, á Íslandi og á Norðurlöndum.

Fyrirtækinu er skipt í þrjú starfssvið í samræmi við sérhæfingu starfsmanna:



Á hverju sviði er boðin þjónusta í verkefnum af eftirfarandi toga:


Glacier Partners, samstarfsaðili Capacent Glacier í Bandaríkjunum, er einnig í samstarfi við verðbréfafyrirtækið Pritchard Capital sem sérhæfir sig í fjármálaráðgjöf tengdri orkustarfsemi í Norður Ameríku. Við vinnum náið með alþjóðlegum fjárfestum sem hafa áhuga á orku, sjávarútvegi og öðrum áhugaverðum atvinnugreinum.

Print Bookmark and Share