Capacent Corporate Finance er framsækið fjármálaráðgjafarfyrirtæki, með starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki, sem veitir óháða ráðgjöf tengda kaupum og sölum á fyrirtækjum, fjármögnun og fjárhagslegri endurskipulagningu. Við leggjum metnað okkar í að veita fyrsta flokks ráðgjöf byggða á trausti og trúnaði við viðskiptavininn. Ráðgjafar okkar hafa áralanga og víðtæka reynslu af að ná árangri fyrir viðskiptavininn, byggða á árangursríkum innlendum og alþjóðlegum verkefnum. Öflugt tengslanet gerir okkur kleift að vinna með fjárfestum og fyrirtækjum í atvinnulífinu hérlendis sem erlendis.
Ráðgjafar okkar þekkja vel til íslenskra fyrirtækja, starfsemi þeirra og umhverfis og hafa haft umsjón með fjölda fjármálaverkefna þeim tengdum hér á landi og erlendis. Ráðgjafar Capacent Corporate Finance hafa unnið með flestum stórum fyrirtækjum á Íslandi við verkefni s.s. kaup og sölur eigna, fjármögnun, virðisrýrnunarpróf, álitsgerðir, samruna og verðmöt.
Við höfum ríkan skilning á mikilvægi fyrirtækjaráðgjafar við framkvæmd stefnu fyrirtækja, hvort sem markmiðið er að taka yfir ný viðskipti eða selja eldri, leita nýrra tækifæra eða almennt að auka verðmæti fyrirtækis. Ráðgjöf okkar byggir á samvinnu, heildstæðri stefnumörkun og skilvirkri aðferðafræði sem skilar sér í betri viðskiptaákvörðunum og traustum viðskiptasamböndum.
Dæmi um verkefni sem ráðgjafar okkar hafa leitt:
Ráðgjafar okkar bjóða þjónustu af eftirfarandi toga:
Capacent býður einnig upp á „turn-key“ lausnir þar sem ráðgjafar í stefnumótun, ferlum, áætlanagerð og á fleiri sviðum geta tekið að sér afmarkaða hluta verkefnis við endurskipulagningu eða fyrirtækjakaup.

- Hagkvæmniathugun í tengslum við fjölmörg stórverkefni
- Ráðgjöf í tengslum við kaup og fjármögnun á 78 íbúðum fyrir eldri borgara
- Ráðgjöf við kaup á stærsta afþreyingarfyrirtæki landsins
- Verðmat á tryggingafélögum
- Fjárhagsleg endurskipulagning leiðandi fasteignafélags
- Útdeiling kaupverðs og virðisrýrnunarpróf fyrir stórfyrirtæki hér á landi og erlendis
- Ráðgjöf við kaup á stórum fasteignafélögum á Íslandi og í Noregi fyrir íslenska fjárfesta